Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.01.1964, Page 26

Kirkjuritið - 01.01.1964, Page 26
KIIIKJURITIÐ 20 kirkjan vaxift' um 40%. Engin önnur minnililutakirkja í Evrópu getur státað af þvílíkri aukningu meðlimafjölda síns. Hvernig stendur á þessari aukningu? Það er margt, sem kem- ur til. Hreyfing, sem hafði það að markmiði að losa um tengsl Austurríkismanna við rómversku kirkjuna, Die Los-von-Rom- Bewegung, hallaðist æ meir á sveif með evangeliskum mönnum og liafði mikla þýðingu fyrir evangelisku kirkjuna. Á þann liátt bættust evangelisku söfnuðunum um 130.000 meðlimir. Árið 1934 bættust evangelisku kirkjunni 25.140 meðlimir, þar af höfðu 17.551 verið sósíalistar utan trúfélaga. Þegar ríkisstjórn Dolcfuss reyndi að koma á þvingunarlögum sínum í trúarefn- um, vildi þessi fjöldi heldur vera evangeliskur en rómversk kaþólskur. Á yfirráðaskeiði nazista gengu fjölmargir SS-menn og SA-menn úr kirkjunni ásamt fjölskyldum sínum, en á sama tíma gengu 27.262 Þjóðverjar og Austurríkismenn í kirkjuna. Og loks á árunum eftir stríð liafa ekki færri en 60.000 flótta- menn, sem orðið liafa eftir í Austurríki, bætzt við evangelisku kirkjuna þar. Þannig hefur tala evangeliskra safnaða vaxið um þriðjung. Sem dæmi mætti nefna Wartburg í Vín, Elixhausen hjá Salzburg, Rosenau lijá Seewalchen, Scliwanenstadt og Mau- erkirchen. Flóttafólkið er framtakssamt í kirkjulegu starfi, og finnst það eigi ekki heima í Austurríki, fyrr en það hefur reist eigin sóknarkirkjur. Nýverið var vígð hundraðasta kirkja evangeliskra manna í Austurríki af þeim, sem reistar hafa verið á árunum eftir stríð. Er sú kirkja í Simmering, verkamanna- hverfi í útborg Vínar. Unnt liefur verið að reisa þessar kirkjur vegna fórnfýsi viðkomandi safnaða, en myndarleg framlög hafa einnig borizt frá lúthersku kirkjunum í Þýzkalandi og Svíþjóð. Forystu fyrir þessari hjálp við austurrísku kirkjuna eins og við aðrar minnililutakirkjur hafa félög, sem kennd eru við Gústaf 2. Adolf Svíakonung, sem lét lífið 1632 í baráttu fyrir málstað siðbótarinnar. 1 Austurríki er félag með sama nafni, sem er tengiliður við féíög Gústafs Adolfs í öðrum löndum. Nýlega var frá því sagt, að Gústaf Adolf-félagið í Austurríki liefði á þessu ári veitt um fimm milljónum schillinga, um 8.5 millj. kr., til lijálpar liinum dreifðu og fámennu söfnuðuin landsins. Mestur hluti þessarar fjárliæðar eða 3.5 milljónir schillinga kom frá Gústaf Adolf-félögum evangelisku kirkjunn- ar í Þýzkalandi. Frá sænsku Gústaf Adolf-félögunum báriisl

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.