Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1969, Qupperneq 36

Kirkjuritið - 01.02.1969, Qupperneq 36
KIRKJtlRITIÐ 82 15. fyrra mánaðar, og var skírð sama dag. Drottinn, þú liefur grætt sárin. Æ, blessa þii þetta bam, sé það vilji þinn. — Það er ekki vilji föður yðar, sem er á hinmum, að einn einasti þessara smælingja glatist. 25. marz 1659. Litla Anna Katliarina borin í liinzta svefnsalinn. Æ, á ég að verða ein þeirra, sem rænd er börnum sínum? Drottinn, liví refsar þú mér svo liarðlega? Hvað lief ég brotið svo af mér, að þú breytir þannig gleði minni í sársauka? Gerliardt huggar mig og segir: „Hví grætur þú? Hún er ekki dáin, lieldur sefur bún.“ Já, hún sefur, en hún sefur svo fast, að rödd mömmu hennar getur ekki vakið hana. Drottinn, ég veit, að þú liefur vald til þess að gera við eign þína það sem þú vilt. En leyfðu mér að kvarta og gráta. „Leyfið börnunuru að koma til mín og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðsríkið.“ 30. nóvember 1660. Fæðingardagur Andrésar, þriðja bamsins okkar — og dánardægur. Líf og dauði, gleði og þjáning, upp' hefð og niðurlæging, allt á fáum klukkustundum. Drottinn, þú veizt livað móðurlijartað þolir mikið. Því legg ég bönd a varir mínar og þegi. „Þegar konan elur barn, er bún Jirygg í lund, því að stund liennar er komin; en þegar bún befur alið barnið, minnist hún ekki framar þjáningarinnar af gleð- inni yfir því, að maður er í heiminn fæddur.“ Já, Drottinn þjáningin er liðin lijá, en bryggðin vill ekki víkja. Má ég ekki segja með Jakob: „Jósef er farinn . . . og nú ætlið þér að taka Benjamín; allt kemur þetta yfir mig.“ Drottinn, nú veit ég, að ég er ekki þess verð að barn kalli mig móður. Æ, fyrirgef mér syndir mínar, — en angist lijarta míns er mikil, bríf mig úr neyð minni. 25. ágúst 1662. Drottinn liefur miskunnað mér í veikleika mínum og vægt syndasekt minni. Fjórða barnið okkar Paul Frederik, var í dag tekinn í söfnuð Iírists í lieilagri skírU- Gleði mín er meiri en þakklæti mitt. Ó, líkamskraftar mínir eru veikir. Ég græt í kyrrþey, þegar barnið mitt nærist við brjóst barnfóstrunnar, en ekki brjóst móður sinnar. Og þetta er þó mitt barn. Drottinn, bara að þú vildir lofa mér að balda þessu barni eftir, þó ekki sem ég vil, beldur sem þú vilt- „Leitið fyrst ríkis Guðs og réttlætis bans, og þá mun allt þetta veitast yður að auki.“

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.