Kirkjuritið - 01.07.1970, Side 7
KIRKJURITIÐ
293
nm landið hér, til heiSurs þér,
helzt mun það blessun valda,
meðan þín náð lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
Vér vorum í gamalli kirkju í morgun. Hái turninn hér
hneigir henni. Hann lýtur þeirri fortíð, sem vitnar um Drottins
iniskunn og trúfesti. Fyrst og fremst er liann lotningarmerki og
þakkargjörð vegna eins manns, sem fékk náð til að kunngjöra
kraft Guðs til hjálpræðis fy rir fleiri kynslóðum en nokkur ís-
lenzkur maður annar. Þá væri Reykjavík ekki höfuðborg, ef
liún bæri þess ekki merki á eftirminnilegan liátt, að minning
lians er lieilög og arfleifð hans ómetanleg.
Kirkja Hallgríms er enn í smíðum, hálfbyggð eða varla það.
í*að minnir á verkefnin, hið marga, sem er óunnið, ófullnað.
Kirkjan horfir fram og sækir fram. Hún á mikla sögu en meiri
Hamtíð. Drottinn hennar hefur ekki lokið smíði sinni. Hann
er að verki og hann kallar oss til verka.
Þetta hús þarf að komast upp. Þar við liggur þjóðarsæmd.
Það er að verða aldarfjórðungur síðan hafizt var lianda. Eftir
^ ár eru þrjár aklir liðnar síðan Hallgrímur dó. Og þá eru 11
^ldir taldar vera síðan byggð liófst í Reykjavík og þar með á
islandi. Vér vonum, að þessi þakkarsveigur vegna þess, sem
Hallgrímur gaf, verði þá fullger. Vér vonum, að þjóðin gefi
sjálfri sér og kirkjunni sinni þá afmælisgjöf.
Hallgrímskirkja er í Reykjavík. Hallgrímur kom að norðan
°g hér í kirkj unni hans er þegar komin Guðbrandsstofa. Væri
ekki maklegt, að Norðlendingar fengju biskupsstólinn sinn
^ftur þjóðhátíðarárið? Það er önnur afmælisgjöf, sem ég vildi
^jósa þjóð og kirkju til lianda.
Síðan kæmi Skáíholt. Árið 1980 eru 900 ár síðan Isleifur dó,
°g Gissur settist að stóli tveimur árum síðar, hann, sem gaf
kálholt. Það gerðist líka mikill atburður í sögu Skálholts
‘05, þótt hann bæri önnur örlög í skauti en hinir fyrri. öll
P°ssi ártöl gefa tilefni til að marka nýtt spor á vegi fram. Senn
verður Skálholt fast í sessi sem lífræn orkustöð fyrir kirkjuna
bjóðina. Og Hallgrímur, sem kom frá Hólum, fékk uppreisn
1 Skálholti og vígðist þar, verður um aldur öruggur til leið-
Sagnar um grunninn, bjargið, sem hin sanna kirkja er byggð á.