Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 12
298
KIRKJURITIÐ
Sr. Sigurður S. Haukdal, Bergþórshvoli, var settur prófastur
í Rangárvallaprófastsdæmi frá 15. september, skipaður frá 1-
janúar þessa árs.
Sr. Ingiberg Hannesson, Hvoli, var settur prófastur í Dala-
prófastsdæmi frá 1. janúar þessa árs.
Unnur Halldórsdóttir lét af störfum sem safnaðarsystir i
Hallgrímssókn. Allt um það er liún nákomin stéttinni áfrani,
því liún er nú prestskona á Norðfirði. Hún mun og starfa að
æskulýðsmálum áfram á víðara vettvangi eftir því sem hún fær
við komið.
V. Sitt af hverju
Nýjar kirkjur bafa ekki verið vígðar á árinu, en tvær endur-
vígðar eftir gagngerar umbætur. Kvíabekkjarkirkja í Ólafs-
firði var endurvígð 27. október og Flugumýrarkirkja í Skaga-
firði á pálmasunnudag, 22. marz. Hana vígði vígslubiskupinu
í Hólastifti forna og liann aðstoðaði einnig við vígsluna á Kvía-
bekk.
Almennur kirkjufundur var haldinn á Akureyri dagana 24.—
26. október. Hann var vel sóttur að þessu sinni og tókst að ölhi
vel. Um bundrað atkvæðisbærir fulltrúar sátu liann, auk ann-
arra. Aðalefni bans var: Störf og verksvið sóknarnefnda.
HiS íslenzka biblíufélag gaf út Markúsarguðspjall í nýrri
þýðingu. Einnig kom út bæklingur eftir sr. Ingþór Indriðason
til leiðbeiningar um lestur Biblíunnar. Æskulýðsslarf þjóð-
kirkjunnar gaf bæklinginn út á æskulýðsdaginn, en liann var
að þessu sinni lielgaður kynningu á starfsemi Biblíufélagsins.
1 september var námskeið á Löngumýri á vegum Biblíufélags-
ins. Yfirskrift Jiess var: Biblían og æskan. Sr. Sverre Smaadalil,
erindreki Sameinuðu Biblíufélaganna, stýrði þessu námskeiði.
Kristileg félagsstarfsemi hefur annars verið í líku borfi og
áður. Sama er að segja um útgáfustarfsemi.
Ég visiteracSi þrjú prófastsdæmi, Snæfellsness-, Mýra- og
Borgarfjarðar, og þakka próföstum, prestum og söfnuðum kær-
ar minningar um góðar samverustundir.
Stjórnarfundur Lútherska Heimssambandsins var baldinn i
Kaupmannahöfn 7,- -13. desember og sat ég þann fund. Áform-
að var, að heimsþing lútberskra manna yrði í Porto Alegre i
Brasilíu nú í júlí. Meinbugir voru frá byrjun á þeirri ákvörðun