Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 41

Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 41
KIRKJURITIÐ 327 Og nú er svo komið, að hin veraldlegu, borgaralegu yfir- völd liafa tekið að sér framkvæmd fjölmargs af því, sem áður var talið sjálfsagt verksvið kristinnar kirkju, og er það vel. Jafnvel er svo komið að fjölmargir í samtíð okkar gjöra sér enga ljósa grein fyrir þætti kristinnar trúar í þessum efnum. Og því er ekki að neita, að sunnim nútímamönnum virðist dulið gildi kristindómsins fyrir okkur og erindi lians við nú- thnamanninn. Margir sjá í kirkjunni aðeins leyfar gamals skipulags, sem einu sinni átti rétt á sér og ef til vill má enn ftotast við til þess að auka hátíðleika á vissum tímamótum Diannsævinnar. Annað ekki. III. Enginn lifir á fornri frægð einni saman. Sagan er nauðsynleg, góð og gagnleg, en enginn lifir eðlilegu lífi í nútímanum af sögulegri frægð einni saman. Sérhver stofnun verður að sanna £ildi sitt á hverjum tíma, einnig kirkjan. Flestum mun sennilega bera saman um, að minna virðist °ft gæta í dag áhrifa kirkjunnar en áður fyrri. Að ýrnsu leyti tttá það til sanns vegar færa. En um leið uppgötvum við okkur til hrellingar, að ýmsar af hinum kristnu kenningum, sem ólluin var farið að finnast sjálfsagt að lúta, eru farnar að Hiissa gildi sitt í hugum nútímamanna. Kristin álirif geta Qldrei lengi lifað kristindóminn með neinni kynslóð. Þessa köfum við séð liryggileg dæmi nú seinustu áratugi. Aldrei virðist mannkyn liafa staðið fjær því að leysa vandamál sín a friðsamlegan hátt og skapa frið á jörð en einmitt nú. Og augljóst er, að fjarri fer því, að hin veraldlegu yfirvöld 8eti bætt úr öllum þörfum þeirra, sem undir eru í þjóðfé- k'ginu og minna mega sín. Jafnvel auðugustu þjóðir jarðar '■rðast ekki liafa efni á því að útrýma þeirri fátækt og neyð, Sem fjármagn ætti að geta leyst úr að verulegu leyti. Og þó vitum við, að þjóðir heims hafa eytt og eyða margföldum f'eiin fjárhæðu m til styrjaldarreksturs þegar lians þykir þurfa við. Þá spyr enginn um kostnaðinn. Þá virðast efnin vera tiæg. Sjáum við ekki í smækkaðri mynd hið sama í lífi ofdrykkju- tiaiinsins, sem hefur ekki efni á að sjá fjölskyldu sinni fyrir

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.