Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 40

Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 40
326 KIRKJURITIÐ Hann gefur nýja skýringu á hinu gamla lögmdli. Enginn hefur jafnskýrt gjört grein fyrir ábyrgft’ mannlegs lífs á þessari jörð. Lögmálið var sett fram á neikva-ðan liátt, að því er snerti samlíf manna og umgengni þeivra Iivers við annan. „Þú skalt ekki....“ Samkvæmt kenningu Jesú Krists getur liið neikvæða lilut- leysi aldrei verið uppfylling boða Guðs. Við berum ábyrgð liver á öðrum. Um leið og við erum sköpuð til samfélags við Guð, erum við einnig sköpuð til þjónustu bver við annan- Æðst allra boðorðanna að dórni Ivrists var bið tvöfalda kær- leiksboðorð: „Þú skalt elska Drottinn Guð þinn af öllu bjarta þínu, og þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Þarna eru kröfur Guðs til okkar settar fram á hinn já- kvæða liátt. Kærleikurinn getur aldrei verið fólginn í nei- kvæðu afskiptaleysi af öðrum, heldur aðeins í jákvæðri, fórn- fúsri ])jónustu við aðra menn, kærleiksþjónustu þess manns, sem sjálfur er höndlaður af kærleika Guðs og vill flytja kær- leika lians út til annarra manna. Ég á að gæta bróður míns. Kristin kirkja hefur aldrei átt nema einn tilgang bér í heimi: Að boða fagnaðarerindi Jesú JCrists, bæði í orði og verki. Slík var boðun hinna fyrstu lærisveina, ]>að verkefni, sern þeim var á liendur falið. Hin sama boðun liefur verið verk- efni allra kristinna manna æ síðan. Hafi eittlivað annað orðið ofan á í starfi kirkjunnar, þá hefur hana borið af leið, og þess eru því miður alltof mörg dæmi í sögu liðinna alda. En samt liefur árangur og ávöxtur liins jákvæða starfs kirkjunnar skýrt komið í ljós á margan og margvíslegan hátt í sögu genginna kynslóða. Ég leyfi mér að fullyrða, í>ð upphaf alls mannúðarstarfs á þessari jörð á rætur að rekja til kenninga Jesú JCrists. Nefna mætti mörg dæmi þess i'r liðinni sögu, þótt hér sé hvorki tími né tækifæri til slíks- Og smám saman hefur þróunin í hinum svonefnda kristna lieimi orðið sú, að liið jákvæða mat kristindómsins á giW1 mannsins hefur unnið sigur og þykir sjálfsagt, að minnsta kosti í orði. A

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.