Kirkjuritið - 01.07.1970, Page 11
KIRKJURITIÐ
297
Sr.Sveinn er fæddur 20. maí 1897, lauk guðfræðiprófi í
febrúar 1920 og var liaustið 1921 settur sóknarprestur í Kálf-
boltsprestakalli og skipaður frá fardögum árið eftir. Því kalli
þjónaði liann síðan, alls í 48 ár, en þegar bann varð sjötugur
yar það almenn ósk sóknarmanna lians, að liann fengi enn um
sinn að sitja í embætti. Hann var settur prófastur í Rangárvalla-
prófastsdæmi vorið 1966. Fyrsta áratuginn sat liann í Kálfholli
en fluttist síðan í Þykkvabæjarþorp. Fyrri konu sína, Helgu
Sigfúsdóttur, missti liann eftir 14 ára sambúð árið 1935 frá 4
börnum þeirra. Síðari kona hans er Dagbjört Gísladóttir og
eiga þau 3 dætur.
Þeim ljúfa dreng með lilýja hjartað, sr. Sveini Ögmundssyni,
þakkar kirkjan, söfnuðir og stéttarbræður, störfin lians og
kynnin öll. Vér biðjum þeim hjónum og börnunum blessunar
Orottins.
Sr. Sigurður Stefánsson sagði lausu vígslubiskupsembætti sínu
fcá 1. ágúst eins og ég gat um í synódusskýrslu minni í fyrra.
Vér sendum honum bróðurkveðju og biðjum bonum Drottins
náðar og friðar í þungbærum veikindum lians.
IV. Nýr vígslubiskup — ASrar breytingar
Vígslubiskup í Hólastifti forna var kjörinn sr. Pétur Sigur-
geirsson, Akureyri, og skipaður frá 1. ágúst. Hann var vígður
biskupsvígslu á Hólum 24. ágúst. Vér vottum bonum traust og
vinarþel og biðjum honum vaxandi giptu í störfum og lífi.
Prestsvígsla var engin á árinu og bættist þannig enginn nýr
starfsmaður í prestastétt. En þessara breytinga á skipan em-
bætta er að geta:
Sr. Lárus Þ. Guðmundsson var skipaður sóknarprestur í
Uoltsprestakalli í V.-Isafjarðarprófastsdæmi frá 1. nóvember.
Sr. Tómas Sveinsson var skipaður sóknarprestur í Norð-
1 jarðarprestakalli, S.-Múlaprófastsdæmi, frá 1. desember.
Sr. Brynjólfur Gíslason var skipaður sóknarprestur í Staf-
boltsprestakalli, Mýraprófastsdæmi frá 15. desember. Allir
þessir prestar liöfðu áður verið settir í nefndum prestaköllum.
Um Kirkjubvolsprestakall í Rangárvallaprófastsdæmi sótti
enginn og var sr. Magnús Runólfsson settur sóknarprestur þar
Uá 15. september. Hefur kallið verið auglýst að nýju og verður
kosið þar innan skamms.