Kirkjuritið - 01.07.1970, Qupperneq 14
300
KIRKJURITIÐ
Þingið verður lialdið í Frakklandi í sumar og hlýtur að
ýmsu leyti að verða með öðrum liætti en áformað liafði verið
og undirbúið. Sr. Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup, verður
fulltrúi íslenzku kirkjunnar á þinginu.
VI. Hjálparstojnun kirkjunnar
Prestastefnan í fyrra markaði nokkurt spor með þeirri sam-
þykkt sinni, að prestar gengjust undir sjálfboðaskatt, einn
hundraðshluta launa sinna, og væri það framlag til aðstoðar
í þróunarlöndum. Þessi samþykkt, sem að sjálfsögðu lagði
ekki neina lögskyldu á presta, þó að liún befði einróma fylg1
á synódus, var gerð til áréttingar á tvennu. Annars vegar var
benni ætlað að styðja þá aðila, sem vinna að því, að íslenzka
ríkið leggi fram fé í þróunarsjóð. Er þetta í samræmi við af-
stöðu kirkjunnar í öllum löndum og yfirlýstan vilja hennar.
Hins vegar var tilgangurinn sá að fylgja með þessum hætti
eftir þeim vilja prestastefnunnar að auka verulega aðild ís-
lenzku kirkjunnar að alþjóðlegu lijálparstarfi. Til framlialds-
aðgerða í því máli var kjörin nefnd og skyldi liún skila tillög-
um sínum til kirkjuráðs. Nefndin vann ágætt verk og lét
kirkjuráði í té ýtarlega álitsgjörð. Á fundi sínum 9. janúar
þessa árs tók kirkjuráð nefndarálitið til meðferðar og lýsti sig
í liöfuðdráttum samþykkt þeim sjónarmiðum og tillögum, sem
þar komu fram. Gerði kirkjuráð síðan svobljóðandi ályktun:
„Kirkjuráð samþykkir, að sett verði á fót hjálparstofnun
þjóðkirkjunnar, sem byggð yrði upp og starfrækt með líkum
liætti og slíkar stofnanir nágrannakirknanna. Kirkjuráð mælist
til þess við synodusnefndina, að liún starfi sem stjómarnefnd
þessarar stofnunar fyrst um sinn, eða þar til kirkjuráð befur í
samráði við nefndina tillögur fram að leggja um framtíðarskip-
an þessara mála.
Synodusnefndin varð við þessum tilmælum. Síðar fól kirkju-
ráð lienni að velja menn til viðbótar í stjórnarnefnd Hjálpar-
stofnunar. Einnig samþykkti það, að sr. Jónas Gíslason yrði
ráðinn til bráðabirgða til þess að vera framkvæmdastjóri stofn-
unarinnar. Var til skilið af lians hálfu, að liann fengi sig 1
bili ] ausan frá þessu starfi með vorinu, þar sem þjónustutínia
lians í Kaupmannahöfn var ekki að fullu lokið.