Kirkjuritið - 01.07.1970, Blaðsíða 16
302
KIRKJUItlTIÐ
vík 12. júní síðastliSinn, var m. a. til nmræðu, hvort og á livern
liált það félag gæti orðið að liði í Perú. Stjórn hjálparsamtaka
kirkjunnar á Norðurlöndum liafði á fundi dagana áður fjallað
um þetta mál. Sú hugmynd kom fram og var studd af öllum
stjórnarmönnum Fluglijálpar, að félagið skyldi lijóða flugvélar
sínar til lijálparstarfs í Perú, ef athugun leiddi í Ijós, að þser
væru hentugar í þeim aðstæðum, sem þar eru, og þarlendir
aðilar teldu þær geta unnið samhærilegt verk og þær gerðu i
Biafra. Yar maður sendur á vettvang til þess að kanna þetta.
Þegar hann hafði gert viðvart um niðurstöðu sína var gengið
frá þessari ráðstöfun og eru vélarnar nú á förum vestur. Stjórn
Perú mun taka við þeim sem gjöf frá kirkjum Norðurlanda.
I þessu sambandi vil ég taka tvennt fram: Flughjálp var sett
á stofn í því skyni að gegna kalli stundarinnar, bjarga milljón-
um manna frá hungurdauða, þegar þeim voru allar bjargir
bannaðar aðrar. Flugvélar félagsins voru keyptar í þessu skym,
og á þeim tíma, sem þær voru í notkun í björgunarfluginu fra
Sao Tomé, gerðu þær mun betur en að borga kaupverð sitt,
miðað við kostnað af leiguflugi. Síðan þessu starfi lauk liafa
þær ekki liaft hlutverk. Til greina kom að selja þær og verja
andvirðinu til hjálparstarfs. En nú bar að verkefni, brýnt og
mikið. Þá var um tvennt að velja: Annað livort að skipuleggj3
hjálparflug á vegum lijálparsamtakanna, eða að fela þeim inn*
lendum aðilum í Perú, sem hafa með liöndum hjálparstarfið
þar, að taka þær og rekstur þeirra í sínar liendur beinlínis-
Þessi síðari kostur þótti öllum, sem áttu atkvæði um málio,
liinn eðlilegi og rétti, og er ég ekki í vafa um, að svo hafi
verið.
Ilitt, sem ég vil taka fram, er þetta: 1 kaup og rekstur þess-
ara véla höfðu fslendingar ekki lagt eyri. Það voru hinar ríkan
kirkjur frændþjóðanna, sem tóku það á sig að öllu leyti. Aðild
íslenzkra manna að þessu fyrirtæki var önnur og mikils metin
í sjálfu sér. En sú lilið, sem snertir fjármuni tekur af öll tvi-
mæli um það, að hér var ekki tekinn hiti frá neinum íslenzk-
um munni, né ráðstafað neinu verðmæti, sem til greina koin
um það að bæta úr íslenzkum erfiðleikum.
Félagið Flughjálp lieldur áfram að vera til. Það er vonandi,
að aldrei þurfi á því að halda framar. En ef viðhorf verða
einhvers staðar hliðstæð þeim sem leiddu til stofnunar félags-