Kirkjuritið - 01.07.1970, Qupperneq 23
KIRKJURITIÐ
309
það eru einmitt þessi köll fyrst og fremst, sem fást ekki skipuð.
Þessi mál þarf að endurskoða frá rótum. Ef ríkisvaldið stefn-
ir að því að koma af sér ábyrgðinni af framkvæmdum á þessu
sviði, sem svo mjög varðar starfsaðstöðu kirkjunnar í landinu,
þá verða aðrir aðilar að koma til, söfnuðir og sveitarfélög, og
'ikið að stuðla að því, að þeim geti orðið fjárliagslega kleift
að annast þetta. Ég flutti fyrir tveimur árum ályktunartillögu
a kirkjuþingi, sem fól það í sér, að söfnuðum væri séð fyrir
tekjustofnum, sem gerðu þeim m. a. fært að standa sjálfir
Undir prestssetrum. Hafði ég þá sérstaklega í liuga söfnuði í
þéttbýli, nánar til tekið á liöfuðborgarsvæðinu, þar sem ljóst
var, að hverju stefndi þar á þessu sviði. Þessi hugmynd fékk
ekki byr á kirkjuþingi og tók ég tillöguna aftur í það sinn. En
að því þarf að vinna, að alltjent binir fjölmennari söfnuðir fái
aðstöðu til þess að sjá prestum sínum fyrir bústöðum, e. t. v.
nieð aðstoð blutaðeigandi bæjarfélags. Fámennu prestaköllin,
seni liafa ekkert bolmagn, verða að njóta fullrar aðstoðar af
ríkisins liálfu í þ essu, nema leið verði fundin til slíks fjárfor-
væðis kirkjunnar, að hún geti annast þetta að öllu leyti sjálf.
^æri sá kostur beztur.
Hitt atriðið, sem ég nefni bér og skiptir ekki minna máli,
ei' ferðakostna&ur presta. 1 öllum þorra prestakalla er bifreiða-
kostnaður prestsins vegna skyldustarfa í þágu embættisins liár
l,lgjaldaliður og mælir öll sanngirni og öll rök gegn því, að
nienn verði að standa undir slíkum kostnaði sjálfir af naum-
um þurftarlaunum sínum. Verði þetta ekki lagfært hið bráð-
asta hlýtur það að koma liart niður sérstaklega á sveitapresta-
^öllunr.
Hin innri mótun
Hér hefur verið drepið á tvö atriði sem blasa við á yfirborði
°S ættu bæði að vera viðráðanleg. En fleira skiptir máli um
Hamboð til prestsstarfa en þetta, og aimað er jafnvel ennþá
þyngra á metum, þegar alls er gætt. Hvernig er það safnaðarlíf,
Sem menn kynnast í uppvexti sínum? Hvaða mynd fá ungir
ntenn af kirkjunni, bæði af kynnum við málsvara hennar og
merkisbera og af almennu viðliorfi til hennar? Vekja þau
^ynni áhuga á því að leggja liönd að því verki, sem kirkjan
vmnur í samtíðinni? Er æskulýðsstarf kirkjunnar sjálfrar