Kirkjuritið - 01.07.1970, Page 28

Kirkjuritið - 01.07.1970, Page 28
Prestastefna Islands 1970 Stóð 23. til 25. júní Var lnin fjölmenn að vanda. Hófst með messu í Dómkirkjunni, predikaði séra Pétur Sigurgeirsson, vígslubiskup, en séra Sigurður Kristjánsson prófastur á Isafirði og séra Erlendur Sigmundsson, biskupsritari, þjónuðu fyrir altari. Fundur synodunnar stóð í safnaðarlieimili Hallgrímskirkju og liófst með yfirlitsræðu biskups. Eftirtaldir menn fluttu fram- söguræður um aðalumræðuefni prestastefnunnar, sem var: KristinfrœSsla í skólum: Ólafur Haukur Ámason, deildar- stjóri, séra Leó Júlíusson, prófastur á Borg, séra Guðmundur Þorsteinsson á Hvanneyri og séra Helgi Tryggvason, náms- stjóri; Helgi Elíasson, fræðslumálastjóri, var viðstaddur að boði biskups. Fundarmönnum var skipt í umræðuhópa til að fjalla um mál þetta og var í lok prestastefnunnar samþykkt ályktun sú, sem birt er liér í ritinu, og jafnframt kosin fimm manna nefnd til að vinna að þessum verkefnum og framgangi kristinna mennta í landinu. Nefndina skipa séra Ingólfur Guðmundsson, séra Guðmundur Þorsteinsson, dr. Björn Björnsson prófessor, Ól- afur Haukur Árnason deildarstjóri og Helgi Þorláksson skóla- stjóri. Á miðvikudaginn flutti séra Helge Fælm, dr. tbeol. í Osló, erindi er bann nefndi En visjon om den liturgiske revisjon. Var það mjög ítarlegt og vandlega samið. Sent var skeyti til skólastjóramóts að Laugum í Þingeyjar- sýslu. Séra Guðmundur Óskar Olafsson flutti Skýrslu Hjálparstofn- unar kirkjunnar. Séra Jónas GísUison, starfsmaður stofnunar- innar gerði frekari grein fyrir störfum hennar. All margir prestar tóku til máls og ræddu um stofnunina frá ýmsum hlið- um. Séra Þorgrímur Sigurðsson boðaði, að lagt yrði fyrir næsta

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.