Kirkjuritið - 01.06.1971, Page 44
frásagnirnar um atburði þessara ára
í lífi Gizurar Einarssonar.
Reynt hefur verið að leysa þetta
vandamál með því að þjappa sam-
an atburðum, svo að þeir gjörist á
skemmri tíma. Gizur er þá látinn
fara í klaustrið sama vetur og hann
er í veri. í klaustrinu er hann látinn
dveljast fram á árið 1536. Þá er
hann látinn fara í Skálholt. Sendi-
förin til Noregs er þá talin farin seint
á árinu 1536 eða jafnvel snemma árs
1537.
Þetta tel ég alls ekki fá staðizt.
Mun ég reyna að finna þeirri skoðun
minni stað og vísa til áðurtalinna
fimm kafla úr ritgjörð síra Jóns
Gissurarsonar.
1) Enginn frœðimaður hefur talið
Gizur Einarsson dveljast skemur en
þrjú ár við nám í Hamborg, enda er
það óhugsandi. Það sýnir menntun
hans síðar á œvinni. Hitt er sýnu
llklegra, að hann hafi dvalizt þar all-
miklu lengur. Um Gizur segir svo á
einum stað: „í þýzkri tungu var hann
svo fimur og ferðugur, að þýzkir
höfðu oft sagt, að hver hann þekkti
ekki mœtti hyggja, að hann vœri
fœddur þýzkur". — Þó má minna á,
að islenzkar heimildir hafa stundum
tilhneigingu til að gjöra mikið úr
málakunnáttu lœrdómsmanna.
2) —3) Reynt hefur verið að telja, að
Gizur hafi sama vetur stundað sjó-
róðra til bjargar búi og börnum móð-
ur sinnar og jafnframt verið í klaustr-
inu í Þykkvabœ. Það tel ég með öllu
óhugsandi.
Sagt er, að Gizur rói ,,í nœstu ver-
stöð" við heimili móður sinnar. Hver
er hún?
Móðir Gizurar bjó í Hrauni í Land-
broti. Nœsta verstöð við Hraun hlýt-
ur að vera við Skaftárósa. Allar aðr-
ar verstöðvar voru of fjarri til þess
að Gizur gœti nokkuð verið heima
við búið, jafnhliða sjósókninni. Eng-
inn efi getur leikið á því, að sjór hef-
ur verið sóttur frá Skaftárósum, sem
eru í nœsta nágrenni við Hraun. Eins
og kunnugt er, hefur ströndin þar
breytzt mikið við framburð Skaftár.
Öll aðstaða til sjósóknar hefur verið
betri áður fyrri en nú er.
í árbók hins íslenzka fornleifafé-
lags frá 1909 er fróðleg grein um
rannsóknir á fornminjum í Vestur-
Skaftafellssýslu. Fyrsti hluti greinar-
innar fjallar um fornar búðatóftir hjá
Seglbúðum í Landbroti. Sé þar rétt
frá hermt, styður það eindregið um-
mœli ýmissa gamalla og fróðra
Skaftfellinga um sjósókn frá Skaftár-
ósum. Nú hafa þessar tóftir verið
sléttaðar út. Jón Helgason bóndi í
Seglbúðum hefur tjáð mér, að engin
merki grjóthleðslu hafi fundizt, er
sléttan var gjörð. Það þarf þó engu
að breyta um þá skoðun, að sjór hafi
verið stundaður frá Skaftárósum fyrr
á öldum.
Þá verður einnig eðlileg sagan um
sendingu vinnumanns móðurinnar til
Vestmannaeyja á vertíð. Eðlilegt var,
að bœði móðir og sonur kysu, að
Gizur gœti verið sem mest heima við
eftir hina löngu fjarvist að heiman.
Honum var þá jafnframt auðvelt að
hjálpa móður sinni við búið jafn-
framt sjósókninni. Hitt er og líklegt,
að Gizur sé orðinn afvanur mikilli
42