Kirkjuritið - 01.06.1971, Page 48
gœti talizt nokkuð langsótt, ef slík-
ur mislestur vœri óþekktur í öðrum
heimildum eða um önnur atriði, en
svo er ekki. Slíkur mislestur þekkist
einmitt um ýmsa atburði, að v sé
lesið x eða öfugt. Nœgir hér að
benda ó frósagnir heimilda af því,
hve lengi Sigmundur biskup Eyjólfs-
son lifir eftir biskupsvlgslu. Er þar
ýmist talað um xix eða xiv daga.
Sama mislesturs virðist gœta um ór-
setningu kirkjubrunans í Skólholti,
sem sums staðar er talinn verða
1527 í stað 1532, sem rétt er. Loks
mó nefna órsetningu þingsins fjöl-
menna, þegar ló við bardaga milli
þeirra biskupanna Ögmundar Póls-
sonar og Jóns Arasonar. Ein heimild
telur það hafa verið haldið 1532,
þótt rétt sé 1527.
Ef þessi tilgóta er rétt, hefur Gizur
Einarsson siglt til Hamborgar þegar
órið 1526, ef síðara latínubréf Gizur-
ar til Ögmundar biskups er talið ritað
ó öðrum vetri hans í Hamborg en
ekki þeim fyrsta, sem mér þykir lík-
legast. Ekkert er því til fyrirstöðu, því
að þó er nómsdvöl hans miklu lengri
en þrjú ór, eða allt að sex til sjö ór,
eins og getið er í sumum heimildum.
VIII.
Hvencer er Gizur Einarsson þó
fœddur?
Ef fyrrgreindar tilgótur eru réttar,
þó siglir Gizur til Hamborgar 1526
eða e. t. v. þegar 1525. Hve gamall
er hann þó?
Síra Jón Gissurarson ritar svo:
,,. . . skrifaði biskup Ögmund bréf
til abbadísar Halldóru, að hún
sendi þenna Gizur til sín út í Skólholt,
sem hún gjörði, hann var þó xvi
vetra; það vor kom honum 1 skip ó
liðnu sumri, og í skóla í Ham-
borg . . ."
Gizur er þannig 16 vetra, er hann
kemur í Skólholt til Ögmundar bisk-
ups. En hvenœr kemur hann í Skól-
holt? Veturinn óður en hann siglir
til Hamborgar, þ.e.a.s. veturinn
1524—5 eða 1525—6. Ekkert er sagt
um það, hvort hann kemur fyrir eða
eftir jólanóttina. ,,Það vor" merkir
aðeins nœsta vor, þ.e.a.s. vorið eftir
að hann kom í Skólholt.
Ekkert er því til fyrirstöðu, að Gizur
hafi komið í Skólholt að hausti til
eða snemma vetrar. Þvert ó móti er
það mjög líklegt. Halldóra abbadís
lét sér annt um að koma börnum
Einars bróður síns til mennta og kom
þeim ,,til þeirrar kennslu, sem þar
gekk 1 Skólholti um daga biskups
Ögmundar". Síra Jón Egilsson segir
svo í Biskupaannólum sínum: „Herra
Gizur kom í Skólholt ó dögum herra
Ögmundar, vaxinn nokkuð; hann kom
honum til menntar og lét hann
sigla".
Loks segir síra Jón Halldórsson svo
í Biskupasögum sínum: „Gizur var
elztur, mjög hneigður til bókar, auð-
sveipur og skilningsgóður,- honum
kom Halldóra, þó hann var vaxinn
nokkuð, 1 þjónustu hjó Ögmundi
biskupi. Þóknaðist hann biskupi svo
vel, að sökum nœmis og skilnings
sendi Ögmundur hann til lœrdóms
í Hamborg uppó sinn eigin kostnað"-
Allar þessar frósagnir gefa í skyn,
að Gizur hafi dvalizt nokkurn tíma
í Skólholti, óður en hann siglir til
Hamborgar, enda mó telja nœrri ör-
46