Kirkjuritið - 01.06.1971, Síða 66

Kirkjuritið - 01.06.1971, Síða 66
oss, sem kristnir erum, að veita jákvœðar og hispurslausar, siðferðislegar leiðbeiningar í kynferðismálum. Það er jafnvœnlegt til árangurs að œtla, að vér verðum lausir við klámið með því að afnema alla ritskoðun eins og að hyggjast losna við ofdrykkju með því að gefa frjálsa alla sölu á brennivíni, segir tímaritið. (B. A.) Kaþólskir prestar og nunnur láta af störfum Nemendum hefur farið nokkuð fjölgandi í prestaskólum mótmœlenda í Bandaríkjunum, segir sr. Gunnar Lislerud í grein um kirkju- líf í Bandaríkjunum í ,,Luthersk kirketidende". Hins vegar eru kaþólskir menn áhyggjufullir vegna þess, hve mjög hefur dregið úr aðsókn ungra manna að kaþólskum prestaskólum vestra. Enn meiri kvíða hefur það vakið. hversu það fer í vöxt, að kaþólskir prestar og nunnur yfirgefi söfnuði sína, skóla og aðrar stofnanir. A þremur árum létu um 12 þúsund prestar af embœtti í kaþólsku kirkjunni í Bandaríkjunum, þ. e. ekki fœrri en fjögur þúsund að meðal- tali á ári. Það bœtir ekki úr skák, að margir þessara manna eru úr hópi fremstu leiðtoga kirkjunnar. Þar eru skólastjórar, heimspekingar, kennarar og forstöðumenn klaustra og trúar- legra stofnana. Fráhvarf frá kaþólsku kirkjunni í svo stórum stíl hefur ekki átt sér stað síðan á dögum siðbótarinnar. Þó er yfirleitt ekki rétt að segja, að um sé að rœða fráhvarf frá sjálfri kirkjunni, því að flest hefur þetta fólk ákveðið að telja sig áfram til kirkjunnar, þó að það láti af störfum í þágu hennar. Þegar reynt er að leita skýringa á þessu, telja menn m. a. þrjár ástœður einkum valda miklu um. 1. Fólk sœttir sig ekki við kröfu kirkjunnar um ókvœni. Margir kaþólskir prestar hafa gengið í hjónaband með nunnum. 2. Mörgum þykir á skorta, að starfsskilyrði séu fyrir hendi innan þess athafnasviðs sem kirkjan hefur sett starfsmönnum sínum. Ýms- ir hœfileikamenn í prestastétt telja sóknar- prestinn einangraðan eins og nú sé háttað. 3. Lögð er áherzla á, að kirkjan eigi að vera trúboðskirkja í veraldlegum heimi, en það verkefni geti hún ekki leyst af hendi, meðan hún búi við hið gamla valdakerfi biskupa, erkibiskupa, kardínála og páfa. — Allmargir prestar, sem hafa sagt skilið við embœtti sín, hafa tekið til starfa hjá Iíkn- arstofnunum eða skólum. (Fast Grunn). Norrœnt prestamót á íslandi árið 1973 A fundi sambandsstjórnar prestafélaga Norður- landa, sem haldinn var í Lejonsdal í nœsta nágrenni Stokkhólms hinn 7. janúar s.l., var ákveðið, að fengnu samþykki stjórnar Presta- félags Islands, að nœsta þing norrœnna presta skyldi haldið á íslandi, að öllum líkum að Laugarvatni, um eða eftir 20. ágúst 1973. Þing þetta eða mót var síðast haldið í Askov á Jótlandi í septembermánuði síðastliðnurn 1970. Sóttu það á þriðja hundrað mannS/ prestar og prestkonur, víðs vegar frá Norður- löndum, þ. á. m. þrír prestar frá Islandi og tvœr prestkonur. Er þess að vœnta, að þingið 1973 á Laug- arvatni verði fjölsótt, einkum þar sem g ild* íslenzku krónunnar er nú, og verður að öN' um líkum, mjög hagstœtt fyrir útlendinga. Þingstaðurinn, Laugarvatn, þykir á margan hátt heppilegur, vegna þess hve miðsvœðis hann er með tilliti til Skálholts, Þingvalla og annarra þeirra staða, sem athygli ferðamanna hefur mjög beinzt að. Þess má geta, að forráðamenn vœntanlegs prestamóts hafa mikinn hug á því, að móts- gestum gefist kostur á að kynnast sem nán- ast íslenzku kirkjulífi, sögu þjóðarinnar og ekki hvað sízt kirkjunnar. Mun og verða stefnt að því, að mót þetta megi verða okkur til sóma» enda enginn vafi á því, að svo getur orðið< ef prestar leggja sig fram, en liggja ekki á lið1 2 3 sínu. Norrœnt prestkvennamót í Svíþjóð Norrœnt prestkvennamót verður haldið dagana 16. —19. ágúst 1971 í borginni Ystad á suður- strönd Svíþjóðar, en þangað eru um 50 km frá Malmö, sem flestir kannast við. Þátttökugjald í mótinu er 195—225 sœnskar krónur, og í því er innifalið gisting og fceði á meðan á mótinu stendur. Þegar mótinu lýkur, verður farið til Lundar og skoðaðir ýmsir merkir staðir undir leiðsöga fylgdarmanns, en sú ferð mun að auki kosta Þátttaka tilkynnist sem fyrst, eða í síðasta lagi fyrir 1. júlí nœstkomandi, til formanns Prestkvennafélags Islands, Guðrúnar S. Jóns- dóttur, sem gefur nánari upplýsingar. Sími 32195. 64
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.