Kirkjuritið - 01.06.1971, Síða 80
heldur er það andinn, sem túlkar
Krists viðburðinn með vörum þeirra
manna, er skírðir hafa verið í and-
anum, sem hafa verið lifandi gjörðir.
Þó kemur fram nýr hóttur predikun-
ar, sem vafalaust þarf sína ögun,
eins og Páll postuli benti svo mjög
á viðvíkjandi „tungutalinu". Án
starfsemi andans mun þjálfun og
máti litlu orka, heldur geta valdið
hindrunum.
Predikunin nú á dögum er um-
girt fjandskap og erfiðleikum, sem
eru ávextir tímans. Svo umgirt getur
hún virzt, að dagar hennar geta og
virzt óvissir. En það verður aðeins
ef predikunin er einungis mannleg
orðsnilld. Að telja predikun mann-
lega snilli, það er að misskilja hana.
Predikunin á rœtur sin-
ar í tilgangi Guðs með-
al manna. Þessi til-
gangur sést í Kristi, sem
er Drottinn, eins og
hann er túlkaður af
heilögum anda. í augum
trúarinnar er Guð að starfi í predik-
uninni. Þannig má vœnta þess, að
hún brjóti niður mannlegar hindranir
til þess að hún komi til vegar hinu
frelsandi verki sínu allt til enda.
Vafalaust koma til breytingar á gerð
hennar og máta eftir því, sem þörf-
in krefur.
Arngrímur Jónsson þýddi
Biðjum fyrir skólum vorum:
Almátttigi Gttð, vér biðjum þig að leiða
mcð Heilögum Anda þinnm allt starf
skóla vorra og menntasetra. Upplýs þá,
er frœða og þá, er nema. Veit þeim, að
þeir vaxi að þckkingn og kœrleika til þin,
er þeir vaxa að þekkingtt á tímanlegum
efnttm; því að þú ert uppspretta vizktt
og skilnings. Fyrir Jestim Krist, Drottin
vorn.
Biðjum fyrir vísindastörfum:
Ó, Gttð, gjafari vizkttnnar, þú, sem gjörð-
ir manninn til að gjóra verk banda þinna
ttndirgefin sér: Vér biðjttm þig, að sér-
hver attkin þekking, og sérhver attkinn
máttur verði manninttm til þeirrar þjón-
ustu, sem birti þinn eilífa tilgang. Fyrir
Jesúm Krist Drottin vorn.
Biðjum fyrir atvinnulífi
þjóðar vorrar:
Almáttugi Gttð, sem hefir helgað at-
vinnttgreinar mönnttnum til hagsœldar;
veit öllttm, sem vinna við atvinnuvegi
lands vors, að þeir tigni þig með því að
bœta úr annarra þörfttm. Varðveit þá frá
háska og óréttlœti og þeir njóti réttlátra
lattna erfiðis stns. Fyrir Son þinn, Jesúm
Krist, Drottin vorn.
Altarnativc Scrvices, Second Scrics,
London, 1966.
78