Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 5

Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 5
ÞORRABLÓT 131 hljómaöi eins og' klukknahringingf í eyrum íslendinganna. Þegar menn mættust á götunum, var þetta vana spurningin: ,, H a 11 o o ! Ætlar þú aö blóta í kveld?“ ,,Hvaö heldurðu? You bet!“ var vifrkvæðið oftast nær. Nokkrir snússuðu sig þó og sögðu: ,,Eg á Þorrablótið? Nei, fjand- inn fjarri mér! Eg fer ekki aö spenna þar dollar ogkvarti úr því eg dansa ekki“. En þeir sem svona töluðu voru ekki vinir blótsins, og hafa því líklega ekki kunnað að meta sitt eigið þjóðerni. Margir af ungu piltunum voru búnir að bjóða stúlkunni, sem þeir ætluðu aö dansa við á Blótinu, fyrir mörgum dögum síöan. Það sem þeir þurftu nú .mest að gæta að voru fötin, sem þeir ætluöu sér að verða í. Þeir létu hreinsa þau, pressa og bursta, og surnir lceyptu sér ný föt. Skyrtur og kragar var tekið glerhart oggljáandi af þvottahúsum hvítra manna og g*ulra. Skór voru svertir bustaðir og stroknir, unz þeir urðu svartir sem tinna, og glampandi sem bezta skuggsjá. Voru margir menn, sem gátu séð andlit sín í ristunr sínum,þegar þeir horfðu ofan á fætur sér. Kvennþjóðin var öll í kjólun- um. í marga daga höfðu þeir ver- ið hennar æðsta og eina umhugsun- arefni. Stúlkurnar vissu það og skildu af eígin reynd, hve óendan- lega mikla þýðingu til gæfu eða ó- gæfu, einn einasti kjóll hefir, fyrir alla þeirra komandi æfi. Efnið, liturinn og sniðið, var auðvitað hinn margtvinnaði rauði þráður, sem mesta þýðingu hafði. En ein lítil b 1 u n d e r i n g, smekkleg 1 i s s a og smávaxin f r u n s a gátu þó ein- kennilega mikið bætt um, ef þær voru settar á réttan stað á kjólnum. Ný-tízkublöð frá Parísarborg, Lund- únum og Nýju Jórvík voru keypt og lesin í ákafa, bæði til fyrirmyndar saumastúlkunum, og til eftirlits, ef kjólarnir voru keyptir í heilu líki hjá Eaton eða Robinson, og einhverju þurfti á þá að bæta af silkilindum og p í r u m p á r i. Sumar stúlkurnar áttu ágætis- kjóla frá Grímudansinum, Nýjárs- dansinum, Gleym-mér-ei-dansinum ogöðrum uppáhalds dansleikjum. Ef þeir höfðu gefist eigandanum vel, var engin ástæða að lóga þeim og fá sér nýjan kjól. Spursmálið og umhugsunin var þá að eins: ,,Skyldi hann nú gefast eins vel eða betur en þá?“ — En þessu varð sann- reyndin sjálf á Þorrablótsdansinum að svara. Þráin var að vísu djúp eins og himinbláminn, vonin fögur sem ímynd ástarinnar, og eftirlöng- unin innilega heit og töfrandi, eins og hjónaban 1 heitt elskandi kær- ustu-samstæðum. En fullnaðarúr- skurðurinn lá djúpt geymdur í skauti hinna ófæddu atvika, sem dansnótt- in átti að leiða í ljós. Menn borðuðu heldur með minna rnóti heima hjá sér um kveldið. All- ir vildu verða sem lystar beztir í heimboði Helga magra að Kristnesi þetta kveld. Það var þó sannar- lega ánægjuleg tilbreytni frá venj- unni, að fá að borða sig saddan á al-íslenzkum hátíðamat, einu sinni á árínu. Vanalega átu menn að eins til að lifa, og halda heilsu og kröft- um, en nú ætluðu rnenn að hafa á því hausavíxl: lifa til að borða. Nú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.