Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 7

Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 7
ÞORRABLÓT 133 voru krossberar tilverunnar, sem ekki höföu haft ge(5 eða tækifæri til að veröa nokkruni samferöa. En þau einnig hvort í sínu lagi, hurfu inn fyrir hallarstafi. Inn í íslenzkt samfélag, íslenzkan glaum og ís- lenzka veizlugleði. Þegar inn úr dyrunum kom, var riö all-mikiö upp aö ganga. Mynti þaö fólkiö á himnastigann fræga. Snotur forsalur tók ciö þegarriöinu slepti. Gengu menn inn eftir honum unz þeir komu aö hurö mikilli og ramlegri. Stóö hún opin. En sem fólkiö vildi inn ganga, sá þaö hvar heljar-digur blámaöur var í dyrun- um. Rekur hann kyn sitt alla leiö suður til Blökkumannalands. Var þá nær því liöið yfir margt af kvenn- fólkinu af skelfingu, því þaö haföi ekki búist við sjón þessari hér, en haföi mikið lesið um mannæturnar í Suöurálfunni, sem Stanley segir frá. En svo var ekkert að óttast, því maður þessi var meinleysið sjálft,og tók aöeins á móti aögöngumiöum fólksins,sem giltu fimm krónur tæp- ar, eöa einn dal og tuttugu ogfimm cent á anieríska peningavísu. Streymdi nú fólkiö hiklaust og ó- kvíöið inn í listilega smíðaðar komp- ur og afkyma, þar sem það tók af sér yfirhafnir sínar og vetlinga, hatta og yfirskó, áður það gengi inn í blótsalina sjálfa. Eru afkym- ar þessir búnir svo vel út, aðkvenn- fólk og karlfólk skiftist í tvær deild- ir, svo enginn ruglingur getur átt sér staö. Fyrir innan dyrnar var fólkinu gefinn sex-blaöa bæklingur, aö káp- nnni meötaldri. Voru þar Þorra- blóts-kvæöin prentuð og nöfn höf- nnda þeirra, ásömt nöfnum minn- anna og flytjanda þeirra. Utan á kápuna var prentað: „Miðsvetrarsamkvæmi. F i m t a Þorrablót Vestur-íslendinga Öskudaginn, 13. Febrúar 1907. Helgi Magri“. En innan í kápunni stóðu þessi alkunnu orö frelsishetjunnar þjóð- hollu“. ,,íslendingar viljum vér allir vera". Fanst öllum setning þessi eiga vel viö að vera einkunn hins ramm-ís- lenzka Þorrablóts Vestur-ísleninga. Allur var frágangur á smáriti þessu hinn prúöasti. Enda var það prentað hjá Ólafi þeim, sem gefiö hefir út þá glæsilegustu bók, sem komiö hefir á prenti áíslenxkri tungu vest- an hafs, og er útgefandi þess feg- ursta tímarits, sem vestur-íslend- ingar eiga til. Blótsalirnir voru þrír að tölu, fagrir og víðáttijmiklir. Vestan viö kompurnar var ræðusalurinn. Þar átti að mæla fyrir minni íslands kvenna og Vestur-íslendinga, og og syngja kvæði um sama efni eftir vestur-íslenzka skáldmæringa, sem alstaöar úir og grúir af, eins og húsflugunni í Winnipegum heitustu sumarmánuðina. Eru þeir meinlitl- ir flestir eins og flugna garmarnir og bíta aldrei fast, en heldur þykir fólki að þeir séu til óþrifa eins og flugurnar. í sal þessum átti rímna- kveÖskíipur einnig fram að fara, á- samt íslenzkutn þjóösöngum og smá- ræðum ýmsra manna, og fleiruþess háttar andlegu og íslenzku góðgæti. Yfir sal' þessum var datissalurinn. Voöalegt gímald meö spegilgljáandi gólfi, og svo hálu aÖ fáir aðrir gátu á því staðiö ódettandi, en margæfð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.