Syrpa - 01.03.1912, Síða 12

Syrpa - 01.03.1912, Síða 12
138 SYRPA betra samræmi aS hvorutveggja væri enskt og er vandi aö segja um, nverir höfÖu þar réttara fyrir sér. En aftur var byrjað aö dansa af nýju fjöri, meö nýjum vonum á nýja sælu. Ofan í ræöusalinn bárust þungar drunur frá hinum óteljandi fótum dansaranna. Var það líkast að heyra eins og mikill brimniður um haust heima á íslandi,eða þrumur í Winni- peg, þegar hellirigning er í nánd. Að vísu dansaði hver og einn eins létt og lipurt og hugsanlegt er aö mannlegur líkami geti gjört. En þegar fleiri hundruö manns er kom- in á fleygi ferð á einu gólfi út í hring- ferð lífsins, þá myndast þessi ein- kennilegi, dimmi og þungi niður. Blandast svo satnan við hvellan og hljómþýðan hljóöfærasláttinn og töfr- ar eyra hvers manns með óskiljan- legum, leiöslufullum eymi. Dun- andi, dillandi, deyfandi, dreymandi eymi. Hafði þessi Úndínu-söngur alt annað en vekjandi áhrif á hálf- syfjaða tilheyrendur ræðanna og kvæðanna. Urðu afleiðingar hans því sárgrætilegri,sem söngmenn og ræðumenn virtust flestir dálítið kvefaðir og lá því heldur lágt róm- ur eins og öðrum kvefuðum mönn- um. Fáliðaður söngflokkur söngÞorra- blótskvæðin, og rauluðu nokkrir af boðsgestum undir eftir beiðni for- setans. Þegar kvæði og ræður fyrir minni íslands, Kvenna og Vestur-íslend- inga höfðu farið fram, þá var hin á- kveðna skemtiskrá á enda og byrj- uðu menn þá að skemta sér á ýms- an hátt. Töluðu hinir og þessir, sem voru boðnir og beðnir ,,upp á pallinn“, fáein orð hver, og fólkið sem sat í sætum sínum, talaði óboð- iö sín á milli ekki hvað minst. Sömuleiðis voru sungin ýms íslenzk og útlend lög með íslenzkum text- um. Nokkur rímna erindi voru kveðin með afar hárri og dimri röddu, af miklum og föngulegum blótgesti. Þótti sumu af fólkinu það bezta skemtunin, sem um hönd var höfð í ræðusalnum. — Þá var Fjallkonan sýnd lifandi af vestur- íslenzkri yngismey, klædd faldbún- inginum íslenzka. Varð þá mörg- um heitt um hjartarætur. Mælti hún skýrt og sköruglega fram N ý- ársósk Fjallkonunnar eftir M a t t h í a s ganila J o c h u m s o n, skáldskörunginn góða. Var fram- burðurinn undra góður þegar þess er gætt að stúlka þessi ervaxin upp í vestur íslenzkum jarðvegi, og hefir hlotið alla sína mentun á enskum skólum. Þórður Sigurðsson,aldraður bóndi utan úr einni íslenzku nýleudunni, var einn á meðal Þorrablótsgest- anna. Hann var forn í skapi og íslenzkur í anda. Var hann kom- inn til lands þessa fyrir tuttugu og fimm árum, þá fulltíða maður. Son átti hann sem Gunnlaugur hét. Dvaldi hann í Winnipeg. Var hann fæddur og uppalinn í Ameríku og nú liðlega tvítugur að aldri. Gunn- laugur var á blótinu og dansaði, en faðir hans hlustaði á ræðurnar og sönginn, þar til minnin voru um garð gengin. Þá geklc hann út í fatakompurnar og mætti þar syni sínum, sem kom ofan úr danssaln- um, allur í einu kófi og þurkaði svitann af enni sér með hvítum silki- klút. ,,Hvernig skemturöu þér pabbi?“ spurði Gunnlaugur föður sinn.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.