Syrpa - 01.03.1912, Page 19

Syrpa - 01.03.1912, Page 19
ÞORRABLÓT 145 þáöi boöiB, og gekk meö konunni inn í afar fína stáss-stofu og settist þar í legubekk, en konan settist niður viö hljóöfærið og byrjaöi að leika á þaö. En naumast böföu fyrstu tónarnir gripið eyru Jóns, þegar seinustu tíu-dalirnir, sem hann hélt ennþáutan um meö hend- inni, flugu upp úr buxnavasa hans og alla leið upp í munninn á fallegu konunni og hurfu þar að eilífu aug- um Jóns fyrir handan rósrauöar var- ir og snjóhvítar fílabeinstennur. Nú var Jóni nógboðiö. Hann stökk út úr húsinu eins og snæljós og fram á götu. Staðnæmdist hann þar í djúpum hugsunum, með tvær hend- ur tómar, sorgfullur og ráöalaus. Þótti honum skemtanirnar svoköll- uöu, hafa orðið sér nokkuö dýrar yfir daginn, og þaö á svo yfirnátt- úrlegan hátt, að Jón var viss um að enginn gæti í því skilið nema sá almáttugi. En þar sem Jón sá eng- an mögulegan veg að ná peningum sínum til baka, en þurfti þó á pen- ingum aö halda til að borga lífs- nauðsynjar sínar, sá hann að brýn þörf kraföi að hann fengi sér eitthvað aö starfa, og það strax. Gekk hann nú fram og aftur um borgina,og bað verkveitendur um vinnu en allir sögðust hafa nóga menn og eigi geta bætt neinum við. Loks kom Jón þar aö, sem menn voru að grafa sextán álna djúpan saurrennuskurð. ',,Voðalegt hlýtur það að vera að þurfa að vinna niöur í þessu myrkri“, hugsaði hann, en spuröi þó hvort hann gæti fengiö vinnu. Verkgefandinn kvað já við því. Sagðist hann þurfa á manni að halda nú sem stæði, en ef Jón vildi fá vinnuna, yrði hann að byrja undir eins, ella tæki hann annan ’mann í hans stað. Jón sá að hér var úr vöndu að ráða, en kaus þó heldur að byrja að vinna strax, en að veröa vinnulaus yfir máske iangan tíma. Flýtti hann sér nú úr treyjunni sinni, fékk lánaöar strigabuxur og skóflu hjá verkstjóranum og fór svo skjálf- andi af hræðslu ofan á skuröbotn- inn til annara verkamanna og byrj- aði að moka. Eftir litla stund leit hann upp frá vinnunni, en þá voru allir samverkamenn hans horfnir, og hann aleinn eftir í kolsvarta myrki og sá engan veg til að kom- ast upp. Honum sýnöist skurð- barmarnir vera að síga saman yfir höfði sér. Hann svitnaði af angist og vildi kalla á hjálp, en þá gat hann engu hljóði komiö upp. — ,,Ert þú þarna Jón? Eg sé ekki betur en það sé treyjan þín sem þú keyptir í vor, sem liggur hérna á skurðbakkanum“, heyrði Jón að sagt var fyrir ofan sig, og þekti hann þar málróm bóndans frá Argyle,sem hann hafði lengst dvalið hjá. Birti þá dálítiö í skurðinum. og sér Jón hvar kaðall er l&tinn síga ofan til sín, og var hann fljótur að hnýta honum yfir um sig miöjan. í sama bili er kipt svo fast í kaöalinn að Jón tekst í háa loft, og er á svip- stundu kominn upp á skurðbarminn til bótidans og í því vaknaði hann, allur í einu svitjikófi og kominn úr rúminu ofan á gólf. ,,Guöi sé lof að þetta var bara draumur“, varö Jótii fyrst aö orði, þegar hann var búinn að núa stír- urnar úr augunum, og gat dálítið áttað sig á hlutunum. Hann leit á úriö sitt. Það var orðiö átta og því kominn fótaferö- artími. Hann klæddi sig hægt og io

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.