Syrpa - 01.03.1912, Side 28

Syrpa - 01.03.1912, Side 28
154 SYRPA beittu sér fyrir vagna, er á voru bæöi vopn og víntunnur; fluttu menn gnægð af víni meö sér, en alls eigi matvæli; sumir reistu siglutré, sum- ir leystu segl. Riddarar fluttu hesta sína út á skipin og var þaö all-sein- legt verk. Á skipunum voru alls konar hljóöfæri og mátti heyra hljóminn víðsvegar. Þegar alt var tilbúið gekk Vilhjálmur hertogi til klaustursins og þuldi þar hinar síð- ustu bænir sínar og offraði sínum síðustu gjöfum á gallverzkri lóð áður hann vann England. Þegar hertoginn gekk á skip var kveld komið; eigi sást til tungls því að loftið var skýað, og fyrir því bauð hertoginn að kveikja skvldi á Ijós- kerum á öllum skipum, eii á sinu skipi hafði hann ljósker á siglutoppi til þess að allur flotinn gæti haft það fyrir augum, sem leiðarstjörnu; skipin skyldu halda samflot og fylgja sem næst á eftir hans skipi. Morg- unin eftir um dægramótin var her- togans skip komið svo langt á und- an, að það var orðið eitt sér; lét hertoginn kasta akkerum og beið þess að flotinn kæmi. Nú sást land fyrir stafni, og um dagmálaskeið fimtudaginn 28. september niánaðar (1066) steig Vilhjálmur hertogi fæti sínum á England. II. Vilhjálmur hertogi tók þar land, er Saxar höfðu fyrir mörgum öldum barizt við Breta og Rómverja og orðið þeim ærið þunghöggir. Vil- hjálmur tók til starfa á Englandi einmitt á þeim sama stað, sem mest hafði verið að því unnið að gjöra Bretland að Englandi. Floti Vil- hjálms var kominn þar að landi, austan til í Sussex,er höfði sá geng- ur að sjó fram, er heitir B e a c h y H e a d . Austan undir þeim höfða er láglendi með sjó fram þangað til liæðir þær taka við, er liggja fram til sjávar hjá Hastings*). Milli sjávarins og hæðanna, sem mynda nokkurn hluta af hinum víðlenda Anderída-skógi, liggur sléttlendi mikið og ganga eftir því smá-ásar ofan til sjávar. Á einum afþeim ás- um við sjóinn reistu Rómverjar borg þá, er Anderída hét, var þar áofan- verðum ríkisárum þeirra allsterkur kastali landinu til varnar. Þar var þá höfn, og svo var enn á dögum Vilhjálms hertoga, og gátu skip legið fyrir akkerum inn undir hinum fornu múrveggjum. Af þeim múr- um sjást enn talsverðar menjar, en enginn maður býr þar nú, eða þar í nánd. í suðaustur horni hinn- ar fornu borgar lét Róbert, bróðir Vilhjálms, gjöra virki eitt og nefndi P e v e n s e y, en það er nú fallið. Þau tvö þorp Pevensey og Vestham virðast eftir afstöðu sinni benda til, að hinir þjóðversku nýbýlismenn hafi viljað reisa bú annarstaðar en á rústum Rómverja. Þegar Atiderida leið undir lok höfðu þjóðverjar lagt undir sig allau suðaustur hluta Bretlands. Hér var það nú, sem Vilhjálmur hertogi kom að landi; fyrir manna sjónum kom hann seni óvinur, en í raun réttri sameinaði hann aftur það, sem um tíma hafði verið sund- urgreint. Pevensey, hin forna Anderída, þar sem Vilhjálmur tók land, var ein af þeirn höfnuni sunnan á Eng- landi sem Haraldur einkum hafði *) Hastings er í Saxn. annálum nefnt Hástingas, Hástingaport, en í vorum sög- um Helsingjaport.

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.