Syrpa - 01.03.1912, Page 35

Syrpa - 01.03.1912, Page 35
ORUSTAN VIÐ HASTINGS 161 um, hvers hann heföi orðið vísari. Sputði Vilhjálmur hann, hvar Har- aldur sjálfur mundi vera. Maður- inn kvað hann mundu vera meðal hinna þéttskipuðu fylkinga uppi á ásnum, því að þar þóttist hann séð hafa konung\smerkið. Þá hét Vil- hjálmur því, að þar skyldi hann láta reisa klaustur guði til dýrðar, ef hann g'æfi sér sigurinn. Þar var ntunkur einn viðstaddur, er hlýddi á tal þeirra. Hann bað hertogann að veita sér þá bæn, að klaustrið yrði heigað hinunt heilaga Marteini, Gallíu pcstula. Játaði hertoginn því, og eigi miklu síðar stóð klaust- ur hins helga Marteins þar efst íi Senlaks-hæðinni. Liði Viihjálms hertoga var skift í þrjár deildir, hvort sem það var af hendingu, eða með vilja gjört, og farið eftir lðndum þeim, er liðið var fríi. í vinstra fylkingararmi voru mennfríiBretagne,Maine og Poitou, ogþeirraforingi var Allan(Erlendur?j frá Bretagne. í hægra fylkingar- armi var frakkneskt málalið, rnenn frá Boulogne og sveitum þar norður, fyrir því liði var Roger frá Mont- gommery, er varð mjög kynsæll rnaður á Englandi, og Vilhjálmur Fitz-Osbern (Ásbjörn?), aldavinur Vilhjálms hertoga og hinn frægasti maður. í miðið, millli Bretagne manna og Pikardí-manna, var aðal- styrkur liðsins, Normenn einir sam- an, eins og Normandí liggur milli Bretagne og Pikardíis. Yzt í hin- urn vinstra fylkingararmi vorum enn af Cotantín-nesi,komnir af mönnum Haraldar blátannar, enn fremur menn af Saxlandi, er kalla mátti náfrændur íbúanna í Vessex og Austur-Angeln. Sumt af liði þessu hafði höggvopn, surnt lnil'ði boga og örvar; allir voru þeir fótgang- andi, ilestir hlífarlausir, í treyjum með hettur á höfði; en nokkrir voru búnir eins og megin þorri liðs- manna, bæði Vilhjálms manna og Haraldar, höfðu hringabrynjur, er náðu ofan að knjám, og frarn á ol- boga, og uppmjóan hjálm á höfði rneð nefbjörg á. Hestar riddaranna höfðu þá engar hlífar, þó svo yrði seinna. Riddarar báru hringabrynj- ur, hjálm á höfði, skildi síöa, og löng spjót, er rnenn héldu á lofti en eigi undir hendi sér, eins og seinna varð. Þegar í höggorustu var gengið, höfðu þeir sverð, en axir höfðu Norðmenn ekki að vopni. Það voru að eins tveir menn, segir sagan,í liði Vilhjálms,er höfðu járn- kylfur að vopni. Kylfan var rétt nefnd voðaverkfæri. Annar þeitra var Vilhjálmur hertogi. Um hann er það sagt, og efiaust ekki orðum auRið, að um hans daga hafi enginn riddari í Norðurálfu verið honum hugprúðari, eða sterkari að afli. Enginn rnaður gat dregið ör fyrir odd á boga hans. Þanti dag, sem orustan varð við Hastings, hafði hann kylfu að vopni, en hvorki sverð eða spjót. Með kylfuntii einni þóttist hann geta mætt exi Harald- ar. Um hálsinn bar hann töframen. Hinn maðurinn, sem kylfu hafði, var Otto biskup af Bayéux, bálf- bróðir Vilhjálms. Hann reið á aðra hönd bróður sínum, og var hinn mesti orustumaður. Hann vildi eigi hella út blóði nokkurs manns með sverði eða spjóti, því að það var á móti kirkjunnar lögum, en að molbrjóta hjálma og höfuðskeljar með kylfuhöggum, það þótti honum alls eigi gagnstætt lögum kirkjunn- ar eða sínu kennimannlega embætti. i i

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.