Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 36

Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 36
162 SYRPA Þeir bræöur voru í miðjum hernum, og Róbert bróðir þeirra með þeim; hann átti Iendur miklar á Bretagfne, og varð síðan jarl yfir Cornwall á Eng’landi. Með þeim bræðruni sóktu framriddarasveitirNormanna. Riddarar þessir og þeirra eftirkom- endur mynduðu hina ensku aðals- mannastétt á miðöldunum. Allur her Vilhjálms hertoga var í þremur siórdeildum, eins og áður var sagt, og þrísettar fylkingar í hverri stórdeild, eftir vopnabnnaði. Fremstir stóðu bogmenn ogslöngu- menn; þar næst þungvopnað fót- göngulið, og aftast hestliðið. Létt vopnaða liðinu var ætlað að rjúfa fylkingar Englendinga, þungvopn- aða liðinu að rífa niður víggirðingar þeirra, og greiða veginn fyrir hest- liðinu. Þótt enginn væri mótspyrna var mjög erfitt ríðandi mönnum að ríða upp brekkurnar á Senlakshálsi, en með öllu ófært, þegar þar vtsru þrísettar girðingar og menn Har- aldar í móti. Þetta var þeim vel kunnugt, hvorum fyrir sig,Vilhjálmi og Haraldi. Haraldur bafði svo um búizt, að Vilhjálmur gat eigi komið við hraustasta liðinu, riddur- unum, fyr en fótgöngulið lians hafði lengi barizt og fengíð mikinn mann- skaða. Englendingar höfðu, eins ogNor- menn, verið snemma á fótum þenna dag. Stóð alt þeirra lið undir vopn- um og beið þess, að Normenn veittu aðsókn. Haraldur konungur reið um fylkingar og talaði til manna sinna. Lagði liann ríkt á við þá að standa þétt, maður við manns hlið, því áð alla þá stund væru þeir ósigr- andi; en ef fylkingar riðluðust, þá væri altfarið; þeir berðust fyrir ætt- jörb sína og ættu hendur sínar að verja, en Vilhjálmur væri þangað kominn af öðru landi, til þess að brjótast þar til valda; þess vegna yrði hann á að sækja, en þeir að verjast. Fyrir þá sök kvaðst hann hafa valið einmitt þessar vígstöðvar og ekki aðrar. Normenn hefðu frækna riddara, og ef þeim tækist aö brjótast í gegnum girðingarnar, mundi erfitt veita að reka þá út aftur, en ef Englendingar stæðu fastir fyrir og fylkingar rofnuöu eigi, þá mundu Normenn ekki vinna á; langspjót þeirra mundu að litlu gagni kotna á þessum orustustað. Meðan Normenn sæktu á brekkuna, mundu skotspjót Englendinga vinna þeirn mikið tjón, en þegar að girð- ingunum væri komið og höggorusta tækist, mundu axir Englendinga ríða Normönnum að fullu. Þegar konungur hafði haft tal af njósuarntanni sínum, reið hann þangað fram sem rnerki hans var, steig af hestinum, og baðst fyrir. Hálsinn var þakinn mönnum, niður utn brekkurnar voru girðingarnar, fylkingar stóðu þétt og varþað sem á skjaldborg eina sæi; eigi var þar árennilegt til uppgöngu. Suðvest- an á hálsinum stóð það liðið, er ó- styrkast þótti; hafði það komið saman í skyndi suður í landijvarað mestu hlífarlaust, höfðu nokkrir af þeim boga, aðrir sverð eða axir, en fiestir spjót eða kylfur, sumirbrodd- stafi eða járnkvíslar, og jafnvel steinvopn. En það var eigi þessum mönnum, sem Haraldur treysti til varnar eður franigöngu. Vaskasta liðið var umhverfis konunginn sjálf- an, varþað einvalalið, oghafðifylgt honum í öllunt hans orustum. Það lið hafði hjálma og hringabrynjur, eins Og Normenn, skjöldu aflanga,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.