Syrpa - 01.03.1912, Page 45
Hvar er Jóhann Orth, konungborni flakkarinn?
(Lauslega þýtt).
RKIHERTOGI Jóhann
Sajvador, er síðar bar nafnið
Jóhann Orth, og var um lang-an
tíma einkennilegasti æfintýramaður
heimsins,hefir nú nýlega verið talinn
af lífi. Fréttir þessar berast nýlega
frá skrifstofu dómsmálastjórans í
Vínarborg. Og ef prinsinn innan
sex mánaða frá yfirlýsing þessari
ekki rífur þögn sína, eða einhver
kemur með gildar sannanir íyrir því,
að hann sé lífs, verður eigunum
sem virtar eru átta miljónir dollara,
skift milli erfingja hans. Hér sjá-
um vér nýjum hlekk bætt við þá
viðburðakeðju, er gerir líf prinsins
svo æfintýrafult, og vér rifjum upp
fyrir oss sögu hans frá byrjun og
fram að hvarfi hans fyrir tveim tug-
um ára.
En er þessi hlekkur hinn síðaiti?
Er Jóhaun Orth dáinn? Er ekki
síðasti þátturinn í þeirri riddara-
sögu óþektur? Er líklegt að þeir
hafi hitt naglan á höfuðið, sem telja
eðlilegast, að ímynda sér, að her-
toginn hafi kosið, að verba annar
Robinson Crusoe, og hafi sezt að á
óþektri eyju suður í höfum? Sú
skoðun er ríkjandi við margarhirðir
í Evrópu. Að ætla hann látinn
styðst ekki við neina sönnun í þá
átt, heldur vöntun á sönnun fyrir
því, að hann sé enn á lífi. Tuttugu
ár er langur tími, einkanlega á þess-
um síðustu tímum þegar ritsíminn
sambindur lönd öll og hraðskreið
skip fara um öll höf og erfitt að
fela sig um svo langt skeið, ekki
síst er sá er glatast hefir,er af kóngs-
ættum, og stjórn voldugs keisara-
ríkis hefir iagt sig í framkróka með
leitina. En mögulegt er það; og
þeir sem bezt þekkjajohann Orth
telja það meira að segja líklegt.
Þeir sem svo hugsa hafa ekki gefiö
upp allar vonir og minnast þess, að
hann hafi oft gert ráð fyrir að fela
sig. Það ætti líka hreint ekki illa
við, að hann bindi þannig endahnút-
inn á viðburðaríkan lífsferil.
Þess meira, sem maður þekkir til
hans, þess líklegra virðist, að jafn-
vel ótrúlegustu tilgáturnar um lifn-
aðarháttu Jóhanns, þessi síðustu
tuttugu ár,séu þau sönnustu. Hann
var vissulega maður æfintýragjarn
og hafði óhug á öllu hversdagslegu,
og hirðlífið var honum byrði. Hann
var sonur ríkishöfðingja, tvímenn-
ingur keisara eins, náfrænkur hans
voru ein drotning og önnur gift
keisara. Um fimm aldir höfðu for-
feður hans löndum ráðið. Skáld
var hann, söngfræðingur, fræði-
maður og hermaður ágætur. Að
öllu athuguðu, bezt.gefinn allra kon-
ungborinna manna í Evrópu. Áunga
aldri brosti framtíðin við honum.
En ein eftir aðra lokuðust frægðar-
brautir hans. Forlög hans urðu
honum þung byrði. Hann þreyttist