Syrpa - 01.03.1912, Síða 60

Syrpa - 01.03.1912, Síða 60
186 SYRPA að láta auðnu ráða með hverju móti eg1 kæmist út á skipið. Loksins kom það, en mér var ekki liðið að vera innan grindanna, sem girða milli farþegja og fólks þeirra og mannfjöldans hinsvegar, sem þyrp- ist að og horfir á þegar skip leggur að. Þegar skipið kom að, skálm- uðu lögregluþjónar nokkrir af stað með fram öðrum grindunum og ráku alla á undan • sér út fyrir hinar nema þá sem farbréf höfðu eða aðgönguspjöld. Eg reyndi hvað eftir annað til að smjúga hjá þeim.en þer tóku einlægt eftir því og skip- uðu mér að kreika á undan sér. Mér lá við að brynna músum, svo var eg sár yfir að vera vísað burt og ekkert viðlit, það eg gat séð, að komast nálægt skipinu, hvað þá heldur umborð. Lögreglan geymdi alla vegu að skipinu og sá var einn til að sýna farbréf eða aðgöngumiða ef komast vildi umborð. Eg áttti hvorugt til og alt útlit á að úti væri um allar mínar vonir að stelast með skipinu. Eg hvarf frá við svobúið og blés mæðilega. Mér var ekki lánið léð, og eg varð að hafa það svobúið. Eg gekk upp bryggjupallinn og ætlaði heim. Eg var kominn eina þrjú hundruð faðma upp frá grindunum, þá sé eg hvar herramaður einn gildur fer og bertösku mikla og bogaði af honum svitinn. Eg tók eftir áð taskan hans var merkt með samskonar miða og eg hafði fest á kistuna mína, og mér flaug eins og elding ráð í hug til að komast umborð. Eg skálmaði upp til mannsins og bauð honum að bera töskuna fyrir hann. Hann vildi ekki þiggja það. ,,Lofið mér að bera hana fyrir yð- ur“, sagði eg og sleit töskuna nærri því úr hendi hans, ,,eg skal bera hána fyrir ekki neitt. Eg þarf að komast umborð til að kveðja kunn- ingja niinn, en eg get ekki komizt, af því eg hefi ekki aðgöngumiða. “ ,,Jæja, þá“, sagði hann, ,,en eg borga þér ekkert fyrir það, og gáttu á undan mér, svo eg geti haft auga með þér“. Eg hefði geta.ð brugðið á leik,svo var eg feginn. Eg skaut töskunni upp á öxl mér og gekk á undan öldungnum. Hann sýndi farbréf sitt við grindurnar og svo gengum við báðir inn fyrir. Á skipsbryggj- unni vildu einir tveir þjónar taka við töskunni af mér, en eg lét hana ekki lausa við þá. Eg ætlaði mér að komast um borð með henni og umborð fór eg. Eg skákaði tösk- unni niður við salsdyrnar, og tók svo stjórann ofan á þilfar og þar ráfaði eg um milli milliþiljafarþegja. Eg forðaðist að fara ofan milli þilja, að ekki bæri svo við að einhver þjónanna færi að rekast í farbréfi við mig. Þegar tími var tilkominn, var skipsbryggjunni skotið af, kaðlar leystir og skipið sveif út á miðja á, vendi og stefndi síðan út úr höfn- inni. Mér var létt um öndina, þegar skipið var komið á fulla ferð til rúm- sævar, því úr því vissi eg, að ekki þurfti að kvíða að eg yrði uppvís fyrst um sinn. Eg ætlaði mérað látast veraþjóð- verji á leiðinni, af því eg hafði ver- ið skipssmiður á þýzku skipi árlangt og talaði þýzku reiprennandi. Fyrir því hafði eg augun með mér til að vita hvar útlendingarnir væru bás- aðir, og var þess skjótt vís að þeir vóru allir hafðir í herbergjum 1. og

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.