Syrpa - 01.03.1912, Side 62

Syrpa - 01.03.1912, Side 62
188 SYRPA dýnu og brekan, ef eg fyndi þaö þar fyrir. Æðimargir farþegar sátu viöborö- in og töluöu saman á tungu,sem eg skildi ekki. Tveir af þeim, tók eg eftir, lSgu meö hausinn fram áborö- ið og virtust ölvaðir. Um klukkan tíu komu þjónar tveir ofan til okkar og sögöu farþegjum aö fara aö taka á sig náðir. Peir stóöu upp og gengu til rúma sinna allir nema ölvuöu farþegarnir tveir. Þjónarnir tóku í axlir þeim og hristu þá til og spurðu, hvaða rúm þeir heföu, en þeir gátu ekki fengiö neitt af viti út úr þeim. ,, Hvar eru farbréfin ykkar?“sagði annar þjónanna, en mennirnir voru ofdrukknir til aö svara. ,,Fleygjum þeim þarna inn í auðu rúmin“, sagði hinn þjónninn, ,,viö getum ekki veriö aö stjana viö þá í alla nótt“. Þeir gripu síöan undir handarkrikana á þeim og drösluöu þeim inn í klefann, sem eg ætlaði að vera í. Þá var mér boðið að ganga til hvílu, en drukknu mennirnir voru búnir aö kenna mér ráðiö. Eg lézt vera drukkinn þegar þjónarnir yrtu á mig og ansaði spurningum þeirra öngu nema með kokhrynum. Þeir gerðu mér sömu skil oghinum.báru mig inn í klefann og lögðu mig upp í rúm,meira að segja rúm sem bæði var dýna og brekan í. Eg var feginn að taka á mig náð- ir, því eg var dauðþreyttur. Egvar búinn að vera á ferli allan daginn og orðinn örmagna af geðsóróa og kvíðanum, sem eg hafði átt í um dagitin. Eg hagræddi mér því hið bezta eg gat, þegar þjónarnir voru farnir, dró brekaniö yfir mig og sofnaöi væran. Klukkan sjö var eg vakinn með öðrum farþegjum og hálf átta borð- uðum við morgunverð. Eg fór meö gát aö matboröinu, en þaö var 6- þarfi, framreizlumennirnir héldu mig vera farþegja og veittu mér beina alveg eins og þeim. Meðan viö sátum aö mat, heyrði eg annan framreizlumanninn segja hinum, að yfirbrytinn hefði sagt sér að hraöa verkum þenna morgunn, því hann ætlaöi að heimta inn far- bréfin klukkan tíu. Þetta var nú einmitt það sem mér lá á að vita. Lánið lék sannarlega við mig. Því þá þurfti eg að vera kominn úr veginum. Þaö vissi eg, aö ef eg gæti falizt einhverstaðar meðan heimtuð væri inn farbréfin, þá væri mér við engu hætt, þangaö til kæmi til Canada. Eg þekkti út í hörgul háttu alla um borð á skipunum,eins og eg hefi áður sagt, og vissi aö farbréfin voru heimt inn daginn eftir að skipið legði af stað, en eg vissi ekki.hvaöa tíma dags þaö væri gert. Nú vissi eg það og þaö gerði alt auöveldara fyrir mér. Áform mitt var að komast upp á háþiljur hið bráðasta eftir máltíðina og vera þar uppi og láta sem eg væri káetufari, þangaö til búið væri að innheimta farbréfin á, milliþilj- um. Þá ætlaði eg aftur ofan. Ekki vissi eg hvenær farbréf væru tekin af káetufarþegjum, en eg var viss um aö þaö væri ekki gert á báöum stööum í senn og því þóttist eg vita að mér mundi all vel borgið að fara upp á háþiljur.ef mér tækist að komast þangað svo aö ekki yröi tekið eftir. En þaö var enginn hægðarleikur við þaö að eiga, því hásetar voru settir á vörð viö allar

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.