Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 63

Syrpa - 01.03.1912, Blaðsíða 63
í SÝN OG FALINN SÝN 189 uppgöngur aS háþiljum til þess að geyma þess að milliþiljafarþegar færu ekki upp þangað. Samt var enginn annar kostur til en reyna að komast upp þangað og það ætlaði eg mér að vera búinn að fyrir tíu. Eg ætlaði ekki að láta þá taka mig nú, fyrst mig hafði rekið undan alt til þessa. Að lokinni máltíð gekk eg upp á þilfarið og var á rölti þar neðan við uppgöngurnar til háþiljanna að fram- anverðu. Þar var stigi sinn hvoru megin í skipinu. Fyrir annan þeirra var brugðið kaðli grönnum milli handriðanna, en hins geymdi háseti einn. Eg sat um hann til að vita hvort hann viki sérsvo frá,að eg gæti laum- ast upp stigann, eða sneri við bak- inu svo að eg gæti skotizt hjá hon- um. En hvorugt var hægt. Hann gekk einlægt fram og aftur og gaf mér ekki færi til þess. Ekki þurfti að saka hann um ótrúmensku á verðinum. Eg sat um hann í hálf- an tíma og réð þá af að láta sem um ekkert væri að vera og ganga snúðugt upp stigann og hjáhonum, skéð gat, að liann héldi að eg væri káetufarþegi. Tíminn var á förurn og þjónarnir gátu komið á hvaða stund sem var til að smala mönnum ofan til að skila farbréfunum af sér. Eg gekk hiklaust upp stigann og fram hjá varðmanninum, eins sak- leysislega og eg gat, en mér brást bogalistin. Hann þreif í handlegg mér og sagði mér að fara ofan aft- ur. Eg lét sem eg skyldi hann ekki og fór að buldra við hann á þýsku, en það stoðaði ekki neitt. Hann tók aftan í bakið á mér og færði mig hægt og gætilega að stiganum og ýtti mér ofan hann. Þá tók eg það til bragðs að skríða upp hinn stigann. Eg fann að eg gat smogið milli kaðalbragðanna og reyndi til þess, en hásetinn tók eftir því,einmitt þegar eg var að smokka mér upp milli bragðanna á þilfars- nöfinni. Hann hljóp til, þreif í haus mér og kýtti mér ofan í stig- ann og sagði mér á hreinni ensku, með nokkrum sjómannakjarnyrðum innan um, að hann skyldi jafna um ónefndan part á brókum mínum, ef hann næði aftur í mig vera að reyna að komast upp á salsþiljur. Eg losaði mig úr stigakaðlinum og skreiddist ofan aftur og hraðaði mér úr augsýn varðmannsins, til þess að vekja ekki grun hjá honum. Eg tók nú stjórann aftur eftir skipinu og fór göngin undir yfir- byggingunni til þess að reyna við háþiljurnar að aftanverðu. Tíminn leið óðum og mér gerðist nú órótt. Á aftanverðum háþiljum st'óðu tvær gufuvindur og inn á rnilli þeirra stóð reykingarsalur káettunnar. Tveir mjóir stigar lóðréttir lágu upp að vindum þessum. Etiginngeymdi þessara stiga, en háseti einn var á gangi fram og aftur örskamt frá vindunum. Það var umsjónarmað- urinn á háþiljunum, fékk eg seinna að vita. Ekki var annað fyrir hendi en freista hamingunnar við annan- hvorn stigann. Hásetinn var stjórn- borðamegin, því sneri eg mér að stiganum bakborðamegin. Eg svip- aðist um til að sjá hvort nokkur veitti mér eftirtekt og gaut ivo augum upp til hásetans og sá að hann sneri bakinu við mér og í sama vetfangi þaut eg upp stigann og kleifupp áþiljurnarbakvið vinduna. Nú var ekki nema tréslá ein milli mín og salsþilfarsins og yfir hana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.