Syrpa - 01.06.1912, Side 8

Syrpa - 01.06.1912, Side 8
198 SYRPA leika sér að stráum, það heyrði andvörp móður sinnar. Og drengurinn litli gat ekki unað því, að mamma hans fengi ekki það sem hún bað um. — Þegar hann heyrði nefndar döðlur, varð honum lit- ið upp á tréð. Og hann braut heilan um það, hvernig hann ætti nú að fara að því, að ná í döðl- urnar. Og það lá við að hrukkur kæmu á ennið undir ljósu lokkunum.' Loks brá fyrir brosi á and- liti sveinsins. Hann hljóp að pálmanum, klapp- aði honum með litlu hendinni og sagði með blíðri barnsrödd. — Beygðu þig, pálmi! Beygðu þig, p á 1 m i! — En — hvað er nú þetta — hvað er um að vera? Það hvein í pálmablöðunum, eins og um þau færi fellibylur og bolurinn kiptist við hvað eftir annað. Og pálminn fann að hér var við ofurefli að etja. Hann varð að hlýða drengnum litla. Og hann lét bolinn sinn háa lúta barninu, eins og menn lúta höfðingjum. Hann laut svo lágt, að krónan mikla með blöðunum blaktandi nam við sand eyðimerkurinnar og bolurinn varð eins og afarmikill bogi. Drengnum virtist alls ekkert bregða við þetta, en hann hljóp að krónunni með fagnaðarópi og tíndi hvern döðluskúfinn á fætur öðrum af gamla pálmanum. Þegar hann þóttist vera búinn að fá nóg, og pálminn lá enn hreyfingarlaus, gekk hann til hans aftur og sagði með innileikans blíðustu röddu: — Rístu upp, pálmi! — rístu upp! Og stóra tréð rétti úr sér hægt og með lotn- ingu, og í blöðunum heyrðist þytur — eins og hörpuhljómur. — Nú veit eg, yfir hverjum þið syngið líksöng- inn, mælti gamli pálminn, þegar hann var búinn að rétta úr sér. Það er ekki yfir neinum þessara fióttamanna. En maðurinn og konan krupu á kné og lof-

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.