Syrpa - 01.06.1912, Side 18

Syrpa - 01.06.1912, Side 18
208 SYRPA “Og hún ckki svo lítil,” skaut prest- ur inn í. “Já, hún ekki svo lítil,” endurtók Gríniur. “Iivernig lizt prestinum á Brand- staði, ef Sigur'Sur vildi taka drenginn me'ögjafarlaust?” mælti Sigurgeir. “Brandsta'öir,” sagöi prestur ofur- lágt og eins og hugsandi. “Kg veit varla hvaö eg á aö segja; börnin þar eru mörg og citt þeirra. þaö elsta, gengur nú til spurninga, og þaö verö eg aö segja, svona okkar á milli, aö ]>aö er aumlega undirbúiö og eins munu þau yngri vcra, eöa þaö fanst mér í vetur, þegar eg húsvitjaöi ]>ar.” “Já, mér lízt illa á þaö, að viö get- um fengið þann staö, Sem ekki rná eitthvað finna að. Þaö er ekki ó- mögulegt, aö Þorgrímur í Hlíð væri fáanlegur aö taka drenginn, samt lík- lega ekki nema með meðgjöf, því að hann kann betur viö aö hafa sitt. Þar eru fá börn og að því leyti gott. En liklega fær hann þar nóg aö gjöra, ef cg þekki Þorgrím rétt. Hvaö segir presturinn annars um Hlíð?” sagöi Sigurgeir og leit til séra Péturs. “Um Hlíö er auðvitað ekkert ilt a'ð scgja. Þa'ð er myndar heimili og nóg ríkidæmi. Kn eg er yður sammála, Sigurgeir minn, að drengurinn mundi fá þar nóg að gjöra, og það væri ekki ómögulegt, að honum iyrði ofboðið. Var þaö ekki í Iílíð, sem vinnumað- urinn gekk í burtu hérna um árið fyrir vinnuhörku og ónærgætni hús- bóndans ?” “Jú. En það er held eg fullmikið sagt, að hann hafi gengið í burt sökum vinnuhörku”, mælti Sigurgeir. “Mað- urinn var að mörgu leyti ómögulegt vinnuhjú fyrir óreglu og trassaskap, en stórgeöja og þoldi ekki aðfinslur. En Þorgrímur er þannig gjörður, að hann þolir ekki óreglu eða hirðuleysi af vinnuhjúum sínum.” “Eg sagði þetta bara af því að eg hafði heyrt það, en ekki af því að eg vildi halla neinu á Þorgrím eða rýra álit hans,” mælti prestur og sneri sér vi'ð í stólnum . “En væri ekki annar livor ykkar fáanlegur til þess a'ð taka drenginn næsta ár og koma honum á framfæri? Eg þekki ykkur báða og ber gott traust til ykkar í því efni.” “Eg segi fyrir niig,” mælti Sigur- gcir, “að eg er alveg ófáanlegur til aö taka hann. Sem betur fer er eg bú- inn að koma mínum börnum á fram- færi. og átti nógu stríðsamt með þenn- an blessaöan lærdóm, þótt eg fari ekki nú að taka vandalaus börn til þess að kenna. Eg býst líka við, að það yrði ckki mikil niynd á því hjá mér En máske Grímur vilji taka hann?’’ Gríinur var ekki fljótur til svars, cn segir svo eftir stundar bið: “Þið þekkið nú ástæðurnar hjá mér. Börnin eru hvert ööru yngra, svo að það er ekki fært að bæta viö þann hóp, og svo yrði líklega lítil mynd á undirbúningnum undir ferminguna. En væri það ómögulegt, að blessaður presturinn vildi gjöra það fyrir hreppinn og í gustuka skyni við drenginn, að taka hann næsta ár? Auðvitað með líku meðlagi sem nú er gefi'ö með honutn. Þar hlotna'ðist honum góður staður.” “Nú eruð þér a'ö gjöfa að gamni yð- ar, Grimur minn. Eg þykist hafa nóg af þessu smáfólki, þótt eg færi ekki að bæta viö mig hreppsómaga.” “Já, öllu gamni fylgir nokkur al- vara,” mælti Sigurgeir. “Þér voruð að stinga upp á því, að við tækjum drenginn, og þá var ekkert undarlegt, þótt Grirni dytti það til hugar að

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.