Syrpa - 01.06.1912, Side 23

Syrpa - 01.06.1912, Side 23
VORHRET 213 þangaö og vissi naumast hvar bærinn væri. En áhina hliSina gladdist hann af því, a'ö presturinn skyldi biSja sig aö fara með bréf á aSra bæi, og þaS svona fyrsta daginn. Hann mátti til meö aö reyna aö fara, fyrst þaö var fyrir prestinn. Hann tók bréfiö, sem prestur haföi lagt á boröiö og vaföi því innan í vasaklútinn sinn og stakk því svo ofan i brjóstvasann á treyj- unni sinni, svo langt sem hann kom því. Svo smeygöi hann sér í blautu sokkana og setti á sig húfuna og vetl- ingana og hljóp ofan og út. En það var komiö fast aö honurn að snúa aft- ur. Hríöin var heldur að dimma. l’að glóröi aö eins vestur i húsin á túninu. Það fór hrollur um hann, þegar hann hugsaði til þess aö eiga að leggja á stað út í þetta myrkur og það svona uppgefinn eins og hann var; hann fann hvernig þreytuna lagöi um sig allan. En hvað skyldi presturinn hugsa, ef hann kæmi aftur og segöi honum, aö hann treysti sér ekki aö fara? Fyrst mundi hann at- yröa hann, og svo mundi hann alveg hætta við þaö aö kenna honum nokk- uö, og til þess mátti hann ekki hugsa. Hann mátti til mcð að reyna aö fara. Ekki var ómögulegt að hann gæti rat- að út að Hóli, hann haföi séð þangað heim í gær, þegar hann fór fram að Stað. Ilann mátti til með að hleypa t sig hörku og leggja á stað og reyna að halda viö göturnar. Og ef hann læsi faðirvor áöur en hann færi, þá vonaöist hann til þess, aö komast út eftir. Síðan hljóp hann á staö, út túnið og út á grundirnar fyrir utan bæinn. Þar stanzaói hann 0£ leit aftur. Bærinn var horfinn og hann gat ekki greint tiokkurn lilut. Þaö var eins og alt rynni saman fyrir sjónum hans. Hann sá að eins djarfa fyrir götun- um, og á meðan fanst honum aö sér væri óhætt, en þó var hálfgerður beyg- ur í honum. Svo lagði hann á staö aftur og reyndi aö hlaupa viö fót. Enn gat hann greint göturnar, en þó fór að kotna spölur og spölur, sem hattn gat ekki vitað hvað göturnar lágu, og svo kom mýrin og þá hurfu þær með öllu. Hriðin var farin aö aukast og þaö sást hvergi á dökkan díl. Samt hélt hann áfram, en nú var hann far- inn að finna til óþolandi þreytu í fót- unum. Hann settist niöur til að hvíla sig. Þreytutitring lagði um hann all- an, og þaö seig yfir hann einliver dvali eöa magnleysismók. Eftir litla stund hrökk hann upp viö þaö. að fönnin þyrlaðist utn hann allan. Iíann var farinn aö hvessa. Hann ætlaöi að standa upp, en hafði ekki mátt ísér; hann var allur orðinn stirðnaöur. Hann hneig niöur aftur. Hann leit í kringum sig, og sá ekk- ert. Hríðin var svo svört, að ekki sást út úr augunum, og stormurinn lamdi svo hríðinni framan í hann, aö hann varð að líta undan. Hann var að bresta á með stórhríö, og frostið a.ö aukast. Siguröur vissi ekkert hvert hann átti að halda. Hann var alveg búinn að missa stefnuna. Honum datt i hug bréfið. Ilann þreifaði eftir því í vas- anum. Jú það var kyrt. En hvernig færi nú, ef hann gæti ekki komið bréf- inu til skila og hvað mundi prestur- inn segja? liklega ávíta hann harö- fega fyrir ótrúmenskuna aö liafa ekki farið alla leið. En þá flaug honum í hug hvaö yrði um hann. Kæmist hann heim aftur, eða myndi hann liggja úti ? Og hvað yröi þá um hann? Líklegt að hann dæi. Þaö fór kulda- hrollur um hann viö þá hugsun. Hann

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.