Syrpa - 01.06.1912, Síða 29

Syrpa - 01.06.1912, Síða 29
ORUSTAN VIÐ TOURS. 219 kcmst hann svo aö oröi: “En þó vér sendvrm ni'öur til þín bók skrifaða á bpkfell, og h'nir vantrúuöu snertu hana meö höndunum, þá myndu þeir segja: ‘þetta er gafdur og ekkert ann- aö’. I’eir segja líka : ‘Nema honum sé^ sendur engill aö ofan......’ (trúum viö ekki). En ef vér sendum engil, þá mun hann kveöa upp dóm þeirra og enginn fá augnahliksfrest (til 'örun- arj. — Koran, Sura 6. En auðvitað halda hinir rétttrúuðu því fram, aö spámaðurinn liafi gert kraftaverk. —Hann að þeirra sögn, vakti upp dauða, læknaði veika; tré töluðu v'iö hann og steinar heilsuöu honum. Kórair'nn brýnir fyrir hinum rétt- trúuðu aö biðja, fasta og veita ölm- usur. — þetta eru hinar helztu skyld- ur þe'rra. Svo er sagt að Mahomet hafi að næturlagi venð fluttur til hininaríkis og átt mjög þýðingarmik- ið samtal við drottinn. Meöal annars bauð drottinn að hinir rétttrúuðu skyldu biöjast fyr r fimtíu sinnum á dag. Uó Maho’ret væri annars sterk- ur í trúnni, þá þótti honum þetta nokkuð langt géngið. Eftir ráðlegg- ing Móses. sem þar var nærstaddur, bað spámaðurinn drottin aö gera sig ánægðan með heldur færri bæna- gjörðir. Fór svO, að þessum fimtíu var breytt í fimm. Og nú, eftir þrett- án ald'r, hvar sem þejr eru staddir, beina hundrað miljónir manna augum sínum til Mecca á fastákveðnum tím- um, fimrn sinnum á dag, og ákalla guð og spámanninn. í mánuöinum Ramadau eiga h'nir rétttrúuöu að fasta einn dag, frá sól- aruppkomu til sólseturs. T-ieim er boðiö að gefa t'l bágstaddra tíund af hinum árlegu tekjum sínum. Uetta er hið minsta, sem þeir mega gefa. Hafi þeir framið afbrot, geta þeir að nokkru bælt fyrir það með því að gefa fimtapart af árstekjunum. Eftirmenn spámannsins voru nefnd- ir kalífar. Vanalegast var einhver hraustur og þaulreyndur herforingi kjörinn t'l þeirrar tignar. Honum var gefiö nærri ótakmarkað vald yfir lífi og eignum hinria rétttrúuðu. Au'ö- vitað áttu þeir að hlýönast boöum kóransins og stjórna samkvæmt fyrir- skipunum þeim, sem þar fundust. En svo var oft misjafn skilningur lagöur í bókina. Fyrst frarn eftir unnu kal- tfarn'r mest að því að stækka veldi sitt og útbreiða hina réttu trú. Um 713 var Spánn orðinn partur af ríki þeirra, og áriö 729 sendi kalífinn Hashem þangað sem landstjóra her- foringjann Abderrahman. Abderrahman var snjall og þaul- reyndur foringi. Harin var djarfur og kom sér vel vi'ö hermenn sína. I öllum dómum sínum var hann eins réttsýnn og honum var unt. Báru því allir, sem þektu hann, mjög mikiö traust til hans. Ár ö 721 hafði Zama herforingi haldið inn á Frakkland með öflugan hcr til aö leggja landi'ö undir kalíf- ann. Eudas, hertogi yfir Aqui- tain, safnaöi liöi til að berjast vi'ö Scrki og bar fundum þeirra saman nálægt borginni Thoulouse. Her kal- ífaus var eyðilagður og herforingi hans drepinn. Sóru nú hinir rétttrú- uöu aö hefna þessara ófara og sendu annan her noröur fyrir fjöll. í>eim gekk nú betur og leið eigi á löngu áð- ur en allt suður-Erakkland var komið þeim á v ald. Abderrabman áleit þessar sigur- vinningar hima rétttrúuöu ágætar, svo Iangt sem þær náðu, en hann bjóst nú til að taka við stjorn og halda þeim áfram. Með því augnamiði

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.