Syrpa - 01.06.1912, Page 48

Syrpa - 01.06.1912, Page 48
SYRVA 228 ca hann bra a handahlaup, og dró hvorid sundur né saman. Fe.tust iiestar bygðarmanna í keidu einni, sem er hér um bil á iniðri heiðinni, og þar skildi með þeim Eyvindi og bygðarmónnum. Kelda þ.s.ii lierir síðan verið kölluö Eyvindar- kelda, og er hún næ^ta ill yíir- ferðar. Þegar Eyvindur var þar eystra, segir sagan, að smalann á Brú á Jökuldal hafi einu sinnj vantað af kvífénu nokkrar ær; fór liann því og lejtaði langt fram á öræfi. Koin hann þá að gili einu, og gekk með því um stund, þang- að til hann sá kofa niður í gilinu, og konu úti sem mjaltaði ær í kvíum. Hundur var meö smala- inanni og gelti; við það leit konan upp. Varð þá smalamaður hrædd- ur og hljóp sem fætur toguðu til bygða. Brugöu bændur skjótt við, og fóru saman fjölmennir, þangað sem þeim var tilvísað; þeir fundu gilið, og sáu merki til mannavist- ar, en gilbúinn var þá allur á burtu. Eftir að Eyvindur kom aftur til bygða, er það haft eftir honum, að hvergi hafi sér vegnað betur i útlegðinni, en á meöan hann var i Eyvindarveri fÞ jórsárverum) ; þvi auk þess sem. hann tók fé af afréttum, haföi hann þar mikið álfta-dráp og gæsa, og hljóp þær uppi, meðan þær voru sárar, og gat þar að auki liagnýtt sér sil- ungsveiði, sem sögö; er óþrjótandi i Fiskivötnum, þó þau sé æði langt hurtu. Þó sagði Eyvindur, að frostvindar væru stundum svo harðir á Sprengisandi, að þar væri ekki líft úti fullroskum manni og vel klæddum. Því er trúlegra, að hann hafi sagt, aö hann vildi engum svo illa, að hann gæti ósk- að honum æfi sinnar, en hitt, sem eifinig er haft eftir honum, að hann ætti ekki svo argan óvin, aö hann vildi vísa hoiium á ve.Aur- öræii; en á austur-öræfi vildi hann vini sínunt vísa. Hait er þaö og eftir þeirn Eyvindi og H.llu, að þau hafi átt börn saman i út- legðinni, og að hún sæi fyrir þeim öllum; en Eyvindur hafði ekki get- aö komiö þar nærri, á mean llalla var aö farga þeim. ÍVKst haföi honum þótt fyrir að missa eitt barnið; það var stúlka 'komin á annað ár. Ilöföu þau ætlaö að láta hana lifa, en þá komu bygða- menn snögglega aö þeitn, svo þau uröu að forða sér, og gátu ekki komið barninu ineð sér, en Halla liafði aðeins ráörúm til að fleygja því fram af björgum. Almenn sögn er það, að þau Eyvindur hafi verið um 20 vetur í útlegð, og orðið þá friðhelg aftur, og segja Grunnvíkingar, að þau hafi komid aftur að sömu jörðinni fHrafn- fjarðareyrij, sem þau struku frá á vestfjörðum, og þar hafi þau dáið, og sé grafin í mýri einni ná- lægt bænum. 'Þar var séra Torfa Magnússyni, sem var prestur á Stað í Grunnavík (1S22—4) sýnt leiði þeirra, marg upphlaðið. Þó ber ekki öllum saman um það, að Halla hafi dáið á Hrafnfjarðar- eyri, því sú sögn er um ‘hana á Suðurlandi, að þegar hún gafst upp seinast, eða náðist, hafi hún veriö orðin svo farin, að ekki liafi þótt fært að halda henni í tugt- húsinu; lrafi hún því fengið að hafast við í koti einu upp í Mos- fellssveit. Þar var hún nokkum hluta sumarsins. En uum hau tið var einhvern dag elaða sólskin og hlíða með hægri kælu; sat , H 'd i bá úti rndir hæjarvegg og sagH: “Faisurt er á fiöh'mum núna”. Nóttina eftir hvarf hún og fanst

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.