Syrpa - 01.06.1912, Page 62

Syrpa - 01.06.1912, Page 62
2 52 SYRPA spekingsins var á þessa leið, glögg og skilmerkileg: ,,Þú ert feigur Pétur. Bú þig undir dauðann! Mér hnykkti við þessa aðvörun, og leit upp á a!la. Enginn við- staddur virtist furða sig á þessum fyrirboða,og enginn virtist vorkenna mér. Það var auðséð fanst mér að þeir voru svona fyrirburðum vanir, og skömmu síðar stóð eg upp, kyaddi og fór mína leið, fyllilega sannfaerður um, að bráðum kæmi að mér, að safnast til feðra minna hins vegar við feigðar fjörðinn. Eg hafði lítið herbergi á fimta lofti í stóru leiguhúsi utarlega í borginni. Mér var nokkuð erfitt að klifra upp tíu stiga og dimma ganga hálf draugalega, þó eg væri því verki vanur. Eg komst að dyr- unum hjá mér, á endanum, opnaði og kveikti á eldspítu. Gustur kom gegn um dyruar, og slökti á henni. Eg kveikti á annari og litaðist um í stofukytrunni. Mér var svohverft við það sem eg sá, að eg greip and- ann íi lofti og hneig upp að gættinni. Á tveimur stólum í miðju lier- berginu stóð líkkista? Hún var úr rauðavið, með eirskildi og öllu til- heyrandi, og alveg upp á þumlung mátulega löng fyrir mig. Eg hljóðaði upp yfir migogstökk út, hentist ofan stigana eins og vit- laus maður og var nær dauða en lífi, þegar eg komst út á stræti. Eg fór og studdi mig við ljósastólpa, þurkaði framan úr mér svitann og hugsaði með sjálfum mér, hvort eg- hefði séð ofsjónir út af hinum draugulegu tilburðum og voveiflegu fréttum á andatrúarþinginu. Eg þóttist vita, að svo væri ekki, því að eg sá þessa skelfilegu líkkistu eins glöggt og hvað annað í her- berginu, og var alveg viss um, að það var hvorki draumur né mis- sýning. Eg leit á klukkuna; það var orð- iö of seint að vekja upp hjá móður- systur minni, í hinum enda bæjar- ins. Mér fanst það ónærgætið að raska ró hennar á þeim tíma nætur. Eg tók það ráð, að leita heldur til kunningja míns, sem hét Opakoff, og bjó í stórhýsinu Bagration, hnepti að mér yfirhöfnina og keif- aði snjóinn, eitt strætið eftir annað, því nú var komin þykkasta drífa. Eg náði leigukastalanum, Bag- ration, eftir erviða göngu; eg klifr- aðist þar upp á fjórða loft og barði á dyrnar hjá OpakofT. Eg tók í snerilinn, þegar enginn svaraði, opnaði, gekk inn og kveikti á eld- spítu. Enginn var í rúminu, svo eg gekk að gaspípunni til að kveikja, en köttur húsbóndans, gamall og svartur högni, mjálmaði á móti mér, og í þeim hug, sem eg var, þótii mér það skárra en ekki. Eg kveikti á gasinu, sneri mér við og settist á rúmið. Um leið og eg tylti mér.þá 'eit eg upp og — drott- inn minn á himnum! Það kom móða fyrir nugun á mér við það sem eg sá. Stórellis likkista úr rauðavið stóð opin á gólfinu, fast upp viðvegginn. Rauðaviðar líkkista rétt mátuleg handa Opakoff, svo sem 4 þuml- unga yfir þrjár álnir á lengd. Eg stökk upp og orgaði eins og brjálaður maður, rauk á dyr, og ó- lukku kötturinn á hælunum á mér, með því ámátlegasta mjálmi. Eg var svo hræddur, að eg hafði ekki hugsun á að kalla á hjálp. Hvernig eg komst ofan, er mér alveg hulið.

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.