Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Qupperneq 5

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Qupperneq 5
NYJAR KVÖLDVÖKUR. 67 framgöngu. Hann var orðlagður fyrir verk- lægni, enda þólti vegagerð hans ágæt. Kennari var Páll góður. Hann er mjög vel að sjer, sjerstaklega þó í. náttúrufræði og íslensku. Af nemendum var hann elsk- aður og virtur og öllum samkennurum hans mun hafa þótt mjög vænt um hann. í trú- málum hefir Páll jafnan verið frjálslyndur. Hann var á yngri árum mjög áhugasamur í stjórnmálum og fylgdi þeim þá jafnan, sem lengst gengu. Sjáifstæðisflokknum fylgdi hann að málum, en á síðari árum mun hann hafa talið sig fylgja íhaldsflokknum, en ekki á þó Páll þar. vel heima, því að enn þá, þrátt fyrir 71 ár að baki, er hann frjálslynd- ur og víðsýnn í flestum málum. Bindindismaður hefir Páll verið nær því alla æfi og hófsmaður um alla hluti. En þó hefir fjárhagur hans lengst af verið mjög þröngur, enda kenslustörf hans illa borguð, þar til seinustu árin. Páll er mjög vinsæll maður. Pegar hann var 60 ára að aldri, sýndu margir honum vinsemd og nokkrir vinir hans, aðallega gamlir nemendur hans, sendu honum 1000 krónur að gjöf. Páll er enn vel ern og virðist lítið vera farinn að láta sig að öðru, en sjón hans er nær alveg þrotin. Þegar hann ljet af kenslu við barnaskólann, veitti bæjarstjórn Akur- eyrar honum 1500 króna eftirlaun á ári og ríkissjóður 600 kr., auk dýrtíðaruppbótar. Síðastliðið ár fjekk Páll 1000 kr. skáldalaun úr ríkissjóði. Páll býr nú ásamt konu sinni í húsinu nr. 24 í Aðalstræti, þar sem hann hefir búið í 25 ár. Helsta^skemtun hans er^að skrafa við kunningja sína, sem heimsækja hann oft, enda geldur hann þeim það vel, því að flestum mun finnast sjer líða vel, þegar þeir eru í nálægð við Pál og hafa unun af að tala við hann, því að hann kann frá mörgu að segja og er jafnan glaður og skemtilegur, og tekur örlögum lífsins með jafnaðargeði, sem sæmir þeim manni, sem bæði er karlmenni og vitmaður. augu iáoanna; Saga eftir J. Anker-Larsen. »Nei, jeg veit það ekki,« sagði veitinga- konan, »það kom aldrei neinn til hans. Hann bjó út af fyrir sig og fór út til að borða.« »Hvenær sáuð þjer hann síðast?« spurði lögreglu-umsjónarmaðurinn. »í gærmorgun,« sagði veitingakonan, »þeg- ar jeg gerði hreint hjá honum og svo í gærkvöldi, er jeg fór inn til hans, til þess að vita, hvort hann vanhagaði ekki um neitt, en hann sagðist bara vilja sofa. Svo þegar jeg ætlaði að gera hreint í morgun, þá voru dyrnar læstar og enginn ansaði, þegar jeg barði.« »Par hepnaðist það,« sagði lögregluþjónn- inn í því að dyrnar voru sprengdar upp. Umsjónarmaðurinn og læknirinn gengu inn í herbergið. Veitingakonan beið við þröskuldinn til þess að vita, hvort eitthvað hefði komið fyrir. Öldungurinn lá á bakinu með krosslagða arma og Iokuð augu. »Já, hann er víst dáinn,« sagði læknirinn. Umsjónarmaðurinn gekk að rúminu og at- 9*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.