Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 24
86 NYJAR KVÖLDVÖKUR ur í návist minni, því að í yður sje jeg hluta af Martel. Pjer voruð hans hægri hönd. En tii eru önnur hjörtu, sem eiga kröfu til yðar. Móðir yðar kallar og þjer eigið að fara. Auk þess verð jeg að byrja á störfum mínum.« »Hvaða störfum?« Hún Ieit beint framaníhann: »Pjer vitið það án þess að spyrja. Neri hepnast ekki leitin; það tekst engum ítala, bara Sikiley- ing — mjer.« »Þjer eigið við, að koma þessum mönn- um í hendur rjettvísinnar ?« Hún kinkaði kolli. »Já! Hver gæti ann- ars gert það?« »En kæra ungfrú. Minnist hvað í húfi er. Menn þessir eru af annari stjett manna, sem þjer aldrei getið komist í kunningsskap við. Hvernig ætlið þjer að gera það?« »Jeg verð ein þeirra, ef nauðsyn krefur!« Hann svaraði óttasleginn: »Nei! Nei! Það er brjálsemi að hugsa um slíkt. Hefðuð þjer verið karlmaður, hefði yður kannske tekist það, en þjer — ung stúlkan!« »Jeg er Sikileyingur. Jeg er auðug. Jeg hefi hjálparmenn.« Hún greip um handlegg hans eins og í fyrsta sinni, þegar hún varð æst út af hættu þeirri, sem vofði yfir Mar- tel. »Jeg sagði yður, að ekkert afl gæti frelsað þá, að enginn felustaður væri svo öruggur, að jeg eigi fyndi hann. Gott. Þessir hermenn hafa ekkert getað gert og munu eigi geta. En sjáið þjer til. Þeir elskuðu Martel eigi. Jeg skal lifa eingöngu til þessa.« Eftir andartaks þögn mæMi hann alvarlega: »Jeg ætla að gera yður boð. Hættið við áform yðar, að taka sjálf þátt í Ieitinni, en látið mig gera þetta í yðar stað. Við get- um unnið saman. Þjer skipið fyrir, en jeg tek áhættuna á mig.« »Þjer eruð útlendingur. Það mundi ef- laust mishepnast. Jeg þakka yður fyrir, en ákvörðun mín er lekin.« »Ef orðasveimur kemst á loft um þetta, yerður líf yðar í stórri haettu. Hugsið yður. Heimurinn stendur yður opinn og allir hans möguleikar. Látið aðrar hendur koma fram þessum hefndum.« »Það er tilgangslaust að ætla að fá mig ofan af þessu,« mælti hún ákveðin. »Jeg er föst fyrir eins og steinninn. Jeg er þeg- ar byrjuð og jeg hefi gert meira en Neri óbersti og hermenn hans. Þarna kemur Aliandro. Jeg held, að hann hafi einhverjar frjettir að færa. Hann veit margt það, sem hermennina dreymir eigi um, því að hann er einn af lýðnum. Gerið svo vel að af- saka mig.« »Auðvitað — en jeg get ekki látið yður byrja á jafn hættulegu starfi án þess að malda í móinn. Jeg kem aftur, ef jeg má.« Hann stóð á fætur til þess að íinna Donnu Teresu. í anddyrinu mætti hann Lucreziu. »Þjer munduð gera mikið til þess, að vernda greifinnuna. Er ekki svo?« spurði hann. »Jú, Signore. Hún hefir verið mjer bæði systir og móðir. En við hvað eigið þjer?« Dóttir Ferara var lagleg, spengileg stúlka. Þótt uppeldi hennar á Terranova hefði verið henni til mikils góðs, mátti þó vel sjá, að hún var sveitastúlka. Blake skýrði henni frá áhyggjum sínum, en þegar hann var búinn að því, varð hann mjög forviða á, að heyra ungu stúlkuna Iesa hinar heiftúðgustu bölbænir yfir morð- ingjunum. »Við heimtum blóð til þess að þvo af blóð ástvina okkar,« hrópaði hún. »Jeg bölva þeim og sálum þeirra lifandi og dauð- um í nafni guðs, sem skóp föður minn, í nafni Krists, sem Ijet lífið fyrir hann og í nafni allra dýrlinga, sem eigi gátu frelsað hann. Mættu þeir biðja og ekki verða bæn- heyrðir, mættu þeir iðrast og eigi fá fyrir- gefningu synda sinna —«. »Lucrezia!« Hann greip í handlegg henn- ar og tók fyrir munn henni, því að hún varð æ háværari, svo að ætla mátfi, að rödó

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.