Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Blaðsíða 9
NYJAR KVÖLDVÖKUR 71 27. júní. Jeg verð að viðurkenna það, að fram að þessu hefi jeg lítið hugsað um annað líf. Á uppvaxtarárum mínum var krafist mikill- ar ástundunar af mjer í því tímanlega, því að móðir mín var fátæk ekkja, þó að hún að vísu liði ekki neyð. Og síðan hefir alt mitt starf miðað að því, að gera mig að dugandi embættismanni í stjórnarráðinu. Pannig liðu virku dagarnir. Á sunnudög- um var jeg vanur að fara smáferðir, eða Iesa nytsamar bækur. Jeg er að vísu enn þeirrar skoðunar, að maður hafi gott af að koma út fyrir borgarmúrana og njóta nátt- úrunnar, en jeg hafði þá snúið urn of baki við kirkjunni og verkum hennar. Pað átti að verða lítil stúlka, sem minti mig á það. Þegar við bárum hana til skírnar, greip það mig svo einkennilega, að hjer vorum við með ofurlitla sál og báðum um, að hún mætti verða tekin í tölu guðs barna. Og þegar presfurinn las orðin: »Látið börnin koma til mín, því að slíkum heyrir guðs- ríki til«, fann jeg alveg á sjerstakan hátt sannleiksgildi þeirra orða. Jeg á engin orð til að lýsa tilfinningum mínum og skynjun á því augnabliki. En það var eins og jeg sæi, að slík sál dvelur enn í ríki himnanna og flytur oss nær því með snertingu sinni. Og þegar presturinn sagði í ræðunni, að guð Ijeti þá smáu kalla hina stóru, þá gat jeg ekki varist þeirri hugsun, að ef til vill hefði mjer verið trúað fyrir Elísu litlu, til þess að hún skyldi minna mig á, að jeg hefði öðrum skyldum að gegna en störf- um mínum hjer á jörðunni. Og jeg hjet þvt með sjálfum mjer, að uppfylla þær skyldur eins vel og hinar. í dag keypti jeg biblíu og skrifaði nafnið hennar og ár- talið á hana, svo að hún síðar gæti vitað,. að biblíu hefði hún átt alla æfi. Einnig hefi jeg ákveðið, að halda þessum hugleið- ingum áfram, eins og dagbók, sem aðeins fjallar um hana. Síðar, þegar hún er orðin svo gömul, að hún getur sjálf haldið dag- bók, fæ jeg henni þessa. Þá hefir hún það fram yfir aðra, að dagbókin hennar byrjar við fæðinguna. Og ef til vill gefur það frá- sögu hennar meira efnisríki, að dagbókin geymir hugsanir föður hennar. Einnig hnýtir það hana fastari böndum við heimilið. 28. júni. Oft hugsa jeg um, hve eðlilegt oss ætti að vera, að trúa á æðri forsjón. Við vit- um, að löndunum er stjórnað af ríkisráði, en ef til vill hugsa menn aldrei um slíka hluti, nema þeir komist í snertingu við sjálf- ar stjórnarhendurnar. En hvað það sýnist eðlilegt að trúa því, að oss sje öllum stjórn- að af æðri forsjón, sem oss þó skortir ímyndunarafl til að skilja. Jeg minnist þess, hve oft jeg hugsaði mig um, áður en jeg tók innstæðu mína úr bankanum og keypti litla garðinn. Og þegar jeg að lokum und- irskrifaði kaupmálann, þá var það meira í ósjálfráðu fáti, en af föstum ásetningi. Það gat naumast verið jeg sjálfur, sem var þar að verki. Og meira að segja, er jeg fagn- aði fyrstu snjósóleynni, sem gægðist upp úr moldinni, þá fann jeg til kvíða og óróa, eins og Ijettúðin hefði leitt mig afvega. Nú get jeg ekki slitið þá hugsun frá mjer, að æðri máttur, sem ræður örlögum vorum, hafi þvingað mig ti! að undirskrifa kaup- málann. Nú getur Elísa litla legið hjer í garðinum, — garðinum sínum og teygað hreina, tæra loftið og baðað sig í sólskin- inu. Hjólin á vagninum hennar hvíla sig mjúklega í sandinum. Það er yndislegt, að þau skuli ekki þurfa að standa á harðri steinstjett. Fyrir það ber okkur að þakka. 2. júlí. Barnslausir menn þekkja ekki lífið. Þau færa okkur nýjan heim, ríkari af innri verð- mætum. En það þarf mikla ástundun til að vaka yfir rjettu samræmi milli hins gamla og nýja. Jeg finn vel, hvernig þetta nýja líf breiðist út og færist nær og nær

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.