Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Qupperneq 13

Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Qupperneq 13
NYJAR KVÖLDVÖKUR 75 fallegt leikfang, líkt og þeir, sem telja blóm- in aðeins skraut. Mjer er illa við þessa áfergju; jeg get ekki sagt hvernig á því stendur, en mjer finst þeir óhreinka loftið í kringum hana — andlega sjeð. l. júlí. Pað var gott að jeg keypti þennan garð. Þau Elísa eiga vel saman. Börn eru lík blómum, þegar þau fá að vera óáreitt. Lífið er svo fagurt og hreint, þegar maður sjer það í líki barna og blóma, sem fá að dafna eftir eðli sínu. Blóm í tilbúnum skraut- vöndum og börn, sem dintir foreldranna hafa kalkað utan, eru ekki lengur falslaus. Slík börn hafa ekki sín upprunalegu augu. Svipurinn ber vott um þótta og sjergæð- ingsskap. En börn og blóm, sem fá að vaxa í friði, þau eru yndi augnanna og hamingja sálarinnar. Elísa litla, hreina, hvíta Iilja! Jeg vildi að jeg gæti gróðursett lim- gerði úr hugsunum mínum f kringum þig, gerði úr rósum og látið þyrnana snúa út. 6. október 1912. í dag var hún fermd. Ó, þið uraðslegu, horfnu ár. Þaó, sem óskrifað er um ykkur, táknar hamingju og þökk. Jeg skrifaði ekki af því að jeg talaði við hana, talaði við veru, sem óx og horfði á lífið og horfði á mig björtu augunum sínum. Á meðan elt- ist jeg og varð gamall, án þess að vita af því, og litla stúlkan mín óx og dafnaði, án þess að gefa því minsta gaum. Mig lang- aði til að þessi dagur gæti orðið hátíð fyr- ir okkur þrjú. Þá hefði jeg afhent henni bókina með fáeinum kveðju- og þakkarorð- um að skilnaði, því að jeg get í sannleika sagt, þó að hún sje dóttir mín, þá hefir h ú n gefið m j e r lífið, — mitt innra líf. En móðir hennar vildi endilega, að gestir kæmu, og jeg hygg, að Elísa hafi viljað það sjálf, svo að jeg Ijet undan. En gestirnir settu annarlegan svip á hátíðina og jeg varð feiminn og þegjandalegur eins og jeg er alt af, þegar jeg er meðal ókunnugra. Jeg geng næstum því með lokuð augu milli manna. Mjer var ómögulegt að taka fram bókina, sem snertir það eina í heiminum, sem jeg hefi skilið, það eina, sem jeg hefi horft á opnum augum. Jeg ætla að hafa hana enn um stund. Mjer finst jeg eiga hana óskiftari, meðan jeg skrifa í dagbók- ina hennar. Á skírnardegi hennar horfði jeg frá þessum blöðum til stundarinnar, sem nú er liðin og þess vegna get jeg ekki slitið þau frá mjer. — Ó, barnið mitt, það eina sem jeg á! A 11, sem jeg á. 1. mai 1913. Nú hvarflar hugurinn til liðinna daga, er hún var að byrja að ganga og það endur- tekur sig margsinnis, en vekur ekki alt af sömu gleði. Börnin fara að ganga, þau fara í skóla og við gleðjumst, því að við göngum ofurlítið á undan eða samhliða. En sá tími nálgast, er fótatak þeirra verður hraðara en okkar, þau ganga á undan okkur í þá átt, sem við getum ekki fylgt þeim í. Þau fara að tala og við gleðjumst yfir orð- unum, sem við sjálf höfum kent þeim. Þau fara að hugsa og hjarta okkar titrar af fögn- uði, er við sjáum að sál kemur í ljós. En þeir dagar koma, er þau eiga hugsanir, sem við þorum ekki að skilja. Jeg hefi lesið þær í augum Elísu litlu, þegar hún reikar um stoíurnar með hálílukt augu og löngu augnahárin skyggja á augun, sem áður voru svo opin og einlæg, Jeg veit hvað þetta þýðir, því að þannig hefi jeg ráfað um skrifstofuna í seytján ár. Jeg veit, að augna- lokin hvelfast yfir innra heimi, sem enginn má sjá. Barnið mitt, dóttir mín, litla, góða Elísa! Jeg veit, að draumarnir eru vaknaðir hjá þjer og hvísla um líf, sem einhversstaðar bíði þín. Og jeg vil gleðjast með þjer, þegar gæfan sýnir þjer brosið, sem dregur þíg frá okkur. En eintnanalegt verður í litla garðinum þínum og einmanalegt í hjarta föður þíns. 10*

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.