Nýjar kvöldvökur - 15.06.1928, Page 19
NYJAR KVÖLDYÖKDR
ÚTGEFANDI: fORSTEINN M. JÓNSSON, AKUREYRI.
XXI. árg.
Akureyri, 15. júní 1928.
6. hefti.
9t e i [ r œ 8 i.
Viljir þú til vegs og gœfu
vorri lyfta þjóð,
œtíð skaltu orð þín vanda,
iðka verkin góð.
Spillir jafnan sál og sinni
sjerhver breytni Ijót.
Aldrei sprottið getur góður
gróður af illri rót.
Forðast skaltu lausung, lýgi,
last og fríðarmorð,
heiftarloga háa kveikja
hatri þrungin orð.
Eftirdœmi göfugt gefðu,
gifta fylgir því.
Fólkið líkist foringjanum
flestum háttum í.
Ef þig brestur ment og mannúð,
mildi og kœrleikshug,
vœnstu sigurvonum öllum
vísar þú á bug.
Aldrei hjarta fólks í framtíð
frjálst í brjósti slœr
fyr en samúð, ást og eining
yfirtökum ncer.
Ef þú launar ilt með góðu
allur fríður grœr.
Orimd og hefnd er glœpa móðir
gjöldin þung sem fær.
Heiftúðugur herforingi
hersins spillir lund.
Aldrei stýrir sigursœlu
sverði níðings mund.
Ýmsir vilja öllu ráða,
oftast sjer í vil,
því er alt að síga og sökkva
í sundurlyndis hyl.
Ej ei tekst að byrgja og brúa
botnlaust feigðarhaf,
menn til góðs ei megna að nota
mátt, sem drottinn gaf
Viljir þú til vegs og gœfu \
vorri lyfta þjóð,
œtíð skaltu orð þín vanda,
iðka verkin góð.
Hreinn þú sjert, í háttum prúður,
hygðu aldrei flátt.
Bróðurást og víð sœ vitund
vekja frið og sátt.
ÝPáff 9lvda(.
11