Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 3

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Page 3
Skipið, sem sigldi í loftinu. Saga eftir Kristmann Guðmundsson. Það var á miðjum slætti' á mildum sumardegi í litlu Laxárdalssveitinni á ís- landi. Fólkið í Dal var að þurka heyið á túninu og setja það í bólstra. Allir voru önnum kafnir, smábörnin sem bóndinn. Það hafði rignt alla síðastliðna viku og heyið var orðið mjög hrakið. Nú reið á því að nota hvert augnablik meðan góð- viðrið hélzt. Jafnvel Þóroddína gamla, fjörgömul, móðir Hávarðar, bóndans í Dal hafði komið út líka, þó að hún væri orðin mjög veikburða og þjáð af gigtinni. Hún var búin að vera blind í mörg herrans ár og skapið var orðið heldur stirt með aldrinum, en hún vildi ennþá um stund fylgjast með því sem gerðist í þeim heimi, sem um langa æfi hafði verið hennar heimur: jörðin í Dal og búskap- urinn þar. • Því var þó ekki að fagna að hún gæti svo sem gert mikið núorðið og ekki tók fólkið, sem nú var að alast þar upp mikið tillit til hennar. Þannig var nýi tíminn með alla sína vitleysu, sem spillti fólkinu. Jafnvel »drengurinn«, sem hún kallaði Hávarð ennþá, þó að hann væri nú kom- inn yfir sextugt, hafði alveg vaxið henni yfir höfuð í seinni tíð. í fyrra hafði hann Hfið niður gömlu, hlýju torfhúsin, sem höfðu staðið alla hennar tíð og í staðinn hafði hann byggt gríðarstór og dýr hús úr járni og tré. Hún hafði gert allt, sem 1 hennar valdi stóð, til þess að hindra að N. Kv. XXIV. ár. 7.-9. h. það yrði gert, því ef að það var ekki brjálæði, þá vissi hún ekki hvað brjálæði var. Ekki gátu þau verið ætluð fólki að búa í, svo stór og ríkmannleg voru þessi nýju hús. Það var líka erfitt að rata í þeim fyrir þá, sem voru orðnir blindir. Já, vissulega var þess full þörf að eldri og reyndari manneskja reyndi að halda aftur af þessum tíma, þegar allt fór með þessum feykihraða norður og niður — út í foræði og eymd. Allt það, sem fólk tal- aði um, að gerst hefði úti í víðri veröld var ótrúlegt og æfintýralegt, já, jafnvel það sem gerzt hafði hér í Dal. Hún hafði nú raunar ekki hlustað mikið á það og heldur ekki spurt neinn, en hún sá ósköp vel hvert allt stefndi! Gat það verið að langt væri til dómsdags úr þessu? Það var þungbært fyrir manneskju, sem lifað hafði á góðum og rólegum tím- um, þegar menn unnu meira en þeir mös- uðu og jörðin var látin vera í friði eins og drottinn hafði skapað hana, að verða þess vör, hversu allt stefndi í glötunar- áttina. Nú var ekkert jafnvægi á neinu lengur. Þeir voru að róta upp jörðinni með einhverju útlendu verkfæri, sem þeir kölluðu »plóg«, og síðan ætluðu þeir að telja fólki trú um að það sprytti betur á eftir. Já, þeir gátu auðvitað sagt henni þetta, gamla skarinu, sem ekkert gat seð sjálf. Það var ekki í fyrsta skiftið, sem 13

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.