Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 4

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 4
98 NÝJAR KVÖLDVÖKUR þeir gerðu þannig grín að henni! Eitt af því sem nýi tíminn hafði komið með, var að maður gat ekki lengur áttað sig á því sem sagt var, hvort það var satt eða log- ið. Hvert sem manni var litið, blasti við manni ókyrrð og fals. — Það var engin virðing til lengur fyrir guði og gömlum venjum. Ekkert var eins og fyrrum, jafn- vel ekki veðrið, sem var nú vætusamara og óstöðugra en áður. Sólin sást sjaldnar á himninum og hún var heldur ekki eins hlý og í gamla daga. »Hefirðu munað eftir því að aðgæta hellugólfið í heytóftinni, Hávarður?« -"'kallaði hún skyndilega gröm. Hún mundi eftir því hvað jarðvegurinn var þar blautur á haustin. »Já, já, mamma«, svaraði bóndinn. Hann hafði ekki skap í sér til þess að segja henni, að það væri búið að rífa gömlu tóftina fyrir löngu síðan og að stór hlaða eftir nýjustu gerð hefði verið byggð í stað hennar. Hún gæti ekki skilið það, já, hann sjálfur skyldi það jafnvel varla, en sonur hans, hann Þóroddur vildi að það yrði þannig. Hann sagði að það til- heyrði nýja tímanum. Hávarður bóndi rétti úr sér og þurkaði svitann framan úr sér með erminni. Hann horfði um stund á gömlu móður sína. Hún sat þarna á þúfu. Visnar og beinaberar hendur hennar voru krepptar utan um birkilurkinn hennar. Andlit hennar sneri móti sólinni. Grátt og gisið hárstríið var ógreitt.----Húðin á enn- inu og kinnunum var blágul og skorpin. Munnurinn vár eins og skökk, mórauð rák fyrir neðan bogna nefið hennar. Föt hennar voru mestu tötrar. Hún þurfti svo sem ekki að ganga í þessum ræflum. Það hafði oft verið reynt að fá hana til þess að fara í betri' spjarir. En það hafði verið gamall siður í Dal að fleygja ekki fötunum í burtu, fyr en búið var að slíta þeim og þeim sið ætlaði hún að halda í lengstu lög. Ennþá var vilji og festa í gamla andlit- inu. Það var auðséð að hún reyndi að hafa »vakandi auga« með vinnunni. í þessu kallaði hún: »Eruð þið búnir að breiða vel yfir heyið hjá fjósinu? Há- varður brosti. Það voru nú mörg ár síðan að heyið hefði verið sett hjá fjósgaflin- um. Hlaðan tók það allt og meira til. Hávarður strauk hendinni yfir skeggið og andvarpaði lítið eitt. Hann var líka orðinn gamall og gráhærður, en það skifti engu máli, hér var nóg af duglegum pilt- um, sem gátu tekið við af honum. Hann komst í gott skap við að líta yfir hópinn: þrjá sterka og karlmannlega syni og sjö barnabörn. Og jörðin var nú ekki sú versta í Laxárdalnum, hún gekk næst Hamrafelli og Laxá og kvikfénaður var þar mikill. Það var unnið að jöriðnni með dugnaði með nýtízku tækjum og vélum. Það var nokkuð annað en á dögum föður hans, þegar einn karlmaður var tvo daga að stinga upp litla kartöflugarðinn! En það hafði svo sem verið gaman að lifa lífinu líka þá og öll þessi nýbreytni var ekki að skapi lums. Hann gat ekki áttað sig á sjálfum sér — hann gat ekki al- mennilega gert sér ljóst við hvorn hon- um líkaði betur, gamla eða nýja tímann. Hann hrökk upp úr þessum hugleiðing- um við að heyra kynlegt, marrandi hljóð, líkt og dunur í snjóskriðu í fjarska. Hver skollinn gat þetta verið? Það var ekki laust við að hann fyndi til angistar fyrst. Slík læti hafði hann aldrei heyrt áður. Nú tóku hinir líka eftir þessu. Þeir hættu hver af öðrum við vinnu sína. Þeir lögðu við hlustirnar og skygndust í allar áttir. Það var auðheyrt að hljóðið nálgaðist í sífellu, en hvaðan kom það? Loksins konr vesalings Hávarður auga á dökkan punkt, hátt fyrir ofan fjöllin í suðri, og hann flýtti sér að segja frá því. Þessi punktur

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.