Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Qupperneq 35

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Qupperneq 35
SÍMON DAL 129 sem þér óskið. — Segið þér mér alveg eins og er — eruð þér á sömu skoðun og Frakkinn?« Það var nú skipunarhreimur i rödd hans og eg gat ekki komizt hjá því að svara. Og eg fann nú, að það var aðeins eitt fyrir mig að segja. Hann hafði sagt mér hvernig eg ætti að þjóna honum. En hvað kom mér það við hvort hann sat þarna eða ekki, ef heiður og velferð rík- isins og allt það, sem gerir kórónuna þess verða að hún sé borin, ætti að fara for- görðum til þess eins, að hann gæti setið þar, sem hann sat? Eg háði enn stutta baráttu við sjálfan mig — öðrumegin voru hinar hlýju tilfinningar, sem höfðu vaknað hjá mér gagnvart honum sjálf- um, hinumegin viðbjóður á »guðspjalli« því, er hann flutti. Hið síðara varð yfir- sterkara. Eg hneigði mig og sagði: »Já, yðar hátign, eg er á sömu skoðun og M. de Fontelles«. Hann hlustaði á mig og hallaði sér aft- ur á bak í stólnum. Hann sagði ekkert, en andvarpaði lágt, hnyklaði brýrnar og brosti. Svo rétti hann mér hendina og eg féll á kné og kyssti hana. »Verið þér sæl- ir, m'r. Dak, sagði hann — »eg veit ekki hversu lengi þér þurfið að bíða. Eg er sleipur og — það er bróðir minn líka«. Hann veifaði hendinni til merkis um, að eg mætti fara. Eg gekk nokkur skref afturábak, svo sneri eg mér við og hrað- aði mér burtu. Eg heyrði allt í kringum rnig hvíslað að eg sjálfsagt gæti átt von á mjög háu embætti í þjónustu konungsins eftir hina löngu samræðu. Kunningjar vildu heilsa mér og óska til hamingju; eg lét hvern og einn halda það sem honum líkaði og hraðaði mér til dyranna. Nú var eg búinn að velja og hafna og brann af óþolinmæði eftir því einu að komast heim aftur. — í dyrunum sneri eg mér við og sá konunginn sitja kyrran í stól sínum eins og áður með hönd undir kinn og raunalegt bros á vörum; hann kom auga á mig og kinkaði kolli. Eg hneigði mig aftur og fór út. Síðan hefi eg ekki séð hann. — En eins og allir vita, þá heppnaðist honum að framkvæma »guðspjall« sitt. Hann sat í hásætinu eins lengi og hann lifði', »af Guðs náð — eða með djöfulsins hjálp« — það veit eg ekki. En þar sat hann. Það er ekki mitt að dæma hann nú. Hann gaf mér frelsi til að velja, og eg valdi. Eg var á sömu skoðun og M. de Fontelles og hélt heim til að bíða eftir konungi, sem það sómdi heiðarlegum og drenglyndum manni að þjóna. — En samt sem áður, enn í dag þykir mér það leitt, að hann skyldi neyða mig til að segja sér, hvers vegna eg kaus að fara heim. XXIV. KAPITULI. Eg kem heim. -----Carford var farinn, sár hans var næstum því gróið — og hann var, vona eg einnig orðinn heilbrigður af ást sinni — eða að minnsta kosti svo, að hann gæti farið að stefna í aðra átt. Fontelles var líka farinn í leit þá, er hafði skemmt Rochester jarli svo vel, þegar hann heyrði talað um hana, eins og áður er getið. Samt er eg hræddur um, að hann hafi haft lítið upp úr leit sinni, og er þess fullviss, að sá, er eg hefi nefnt M. de Perrencourt hafi aftur fengið sinn móðgaða þegn í þjónustu sína, og að hann hafi þjónað konungi sínum með prýði. — Ef eg á að vera hreinskilinn, verð eg að játa það, að hefði eg verið franskur mað- ur, mundi eg geta fyrirgefið Lúðvík kon- ungi bæði margt og mikið — og þó eg sé Englendingur, get eg naumast sagt, að eg hati hann mikið — að minnsta kosti' ber það oft við, að eg sé hring hans á '7

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.