Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 26

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Side 26
120 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hjartans eins og í fyrri daga, hafði hún þó alltaf Ijúf áhrif og vakti endurminn- ingarnar. — Allt í einu opnuðust dyrnar og hún stóð frammi fyrir mér, brosandi, virtist full af kæti, og hneigði sig mjög djúpt. »Hugrakkur maður!« hrópaði hún. »Hvernig stendur á ferðum yðar? Eruð þér ekki hræddur?« »Hræddur um að eg sé ekki velkominn, en ekki við að koma«, svaraði eg. — »Mistress Nelly, eg kom til þess að votta yður þakklæti mitt fyrir hina miklu vinsemd...« »Já, ef hægt er að kalla það vinsemd, að hjálpa yður til að ná í annað eins flón!« sagði Nelly. — »En þér eigið þó eitthvert annað erindi til borgarinnar, en að þakka mér?« Eg varð að fyrirgefa að hún kallaði Barböru flón, og svaraði brosandi: »Eg þarf að finna kónginn, eg veit ekki hvernig hug hann ber til mín — en mig langaði til að fá hann til að hjálpa mér til að ná í — flónið mitt«. »Ef þér eruð hygginn, þá gætið þess, að hann sjái yður ekki!« Svo fór hún að hlægja. — »Nei, eg veit ann- ars ekki..« Snögglega hljóp hún til mín, greip í treyjuna mína og sneri mér í hring á gólfinu full af kæti. »Eigum við ekki að leika dálítið ?« spurði hún. »Ef þér viljið«, svaraði eg, »en hvaða hlut- verk á eg að leika?« »Þér skuluð leika þessa frönsku stúlku, sem nú er talað svo mikið um«. »Frönsku stúlkuna? — En í guðanna bænum...« »Jú, þér verðið að gera það, Símon. Og eg skal vera kóngur- inn. — Nei, heyrið þér nú, þér skuluð ekki vei’a hræddur! Eg er alveg viss um að þér munduð reyna að hlaupa burtu!« Er það ekki líka fyrirskipað, sem sú bezta vörn gegn freistingunum?« »Æ, því er nú miður, þér eruð ekki freistaður. — En það er ennþá eitt hlutverk í leikn- um — stórt hlutverk«. »Fyrir utan kóng- inn og frönsku ungfrúna? Hver er það? — Ekki þó ég sjálfur?« »Nei, hvað ættuð þér að gera í þeim leik, Símon? — En eg þar á móti!« »Það er satt — eg gleymdí yður, mistress Nelly«. »Þér gleymið mér, Símon! En eg skal ekki vera að rekast í því — þér hafið orðið að þola ákúrur fyrir gleymskuna hjá mistress Barböru — og það er hart að þurfa að heyra slíkt úr tveimur áttum í einu. — En hver á að leika mig?« »Eg get ekki hugsað mér neinn, sem sé fær um það«. —»Jú, kóng- urinn á að leika það!« hrópaði hún og hló sigri hrósandi. »Skiljið þér ganginn í leiknum, Símon?« »Eg er ákaflega skiln- ingssljór«, sagði eg. »Það er ástand yðar en ekki eðli, Símon«, var Nelly svo vin- gjarnleg að segja. »Ástfanginn maður er alltaf nokkuð sljór — og kona í sama á- standi er alveg bandvitlaus.... Komið þér nú! Getið þér ekki gert yður ofboðlítið líklegan við mig, eða eruð þér búinn að gleyma aðferðinni?« Um leið og hún sagði þessi síðustu orð, var handfanginu á hurðinni snúið — aft- ur var því snúið og rykkt í það. »Eg læsti, þegar eg fór út«, hvíslaði Nelly og augu hennar ljómuðu af glettni. — Aftur og aftur og með meiri og meiri óþolinmæði var snerlinum snúið og hurðin hrist. — »En hvað hann kemur stillilega!« hvíslaði Nelly. Að lokum var barið harkalega og það var hrópað mjög reiðulega: »Ljúkið þér upp! Eg skipa yður að opna!« »Guð hjálpi okkur!« hrópaði eg lágt og það kom fát á mig. »Það er konungurinn«. »Já, það er konungurinn«, hvíslaði hún. — »Nú byrjar leikurinn, — Símon, reyn- ið þér nú að líta eins óttasleginn út og þér getið!« »Opnið þér! Heyrið þér ekki!« æpti konungurinn og barði í hurð- ina svo undir tók í húsinu. Eg skildi nú, að hann hafði verið í innra herberginu, þegar eg kom, og að hún hafði yfirgefið hann, til þess að tala við mig. En mér var hulið, hvers vegna hún hafði lokað hann inni, og af hverju hún var svo sein til að opna. En eg hélt

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.