Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Síða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Síða 9
SÍMON DAL 103 nr. Alls ekkert hræddur. — Hræddur! nei það skyldi ekki sannast. Hann beit á jaxlinn og starði á andlit afa síns. Það var svo harðneskjulegt og kuldalegt þarna langt í burtu hjá stýrinu. En það var undarlegur glampi í gráu augunum Grímur litli hélt í fokkuna með báðum höndum. Það sveið undan því. Hann sá að blæddi úr lófunum en í brjósti brauzt um hlátur og þverúð. Sjórinn lamdist framan í hann. Bátur- inn var orðinn hálffullur af sjó. Hann sá að sjómennirnir voru fölir í framan. Drynjandi brimið við Horn var aðeins nokkra metra í burtu. Hatturinn fauk af honum, en hann sinnti því engu. Hann hleypti sér saman af ákafa. öll sál hans og líkami birtist í einni járnharðri kröfu: Jeg vil! Jeg skal! Síðasta bylgjan kom æðandi, braut yfir bátinn og hálf fyllti hann. Því næst komu þeir inn á rólegan sjó fyrir innan Horn. Þá hló Grímur litli. í fjörunni heima snýtti gamli Grímur sér svo hátt að kvað við. Hann tók dós- irnar upp úr buxnavasanum, fékk sér í nefið og glotti. Síðan hóstaði hann lítið eitt, sneri dósunum á milli handanna og glotti íbygginn. Hæ, skríkti í honum. Ef að þessi snáði verður ekki sjómaður með tímanum........ Hann skríkti aftur og fékk sér í nefið áður en hann hélt áfram. Grímur litli stóð rétt hjá honum í sjó- stígvélum og skinnbuxum. Við hliðina á honum var lítil, dökkhærð stelpa, að beita linu. Grímur litli leit til hennar og roðnaði. Glettnisleg, grá augu horfðu lengi ástúð- lega á hann. Davíð Þorvaldsson þýddi lauslega. S í m o n D a I. Saga eftir Anthony Hope. »Ást mín til yðar er nú gömul saga«, hélt hann áfram mýkri í máli, »tvisvar er eg búinn að skýra yður frá henni og sá, sem þarf að gera slíka játningu tvisvar árangurslaust, hlýtur að síðustu að syrgja yfir sviknum vonum. En mér fannst þér komast frekar við í seinna skiftið, sem eg talaði um það við yður. Má eg játa yður ást mína í þriðja sinn?« »Það er ekki vel valinn tími, lávarður minn, til að ræða slíkt —« byrjaði hún. »Þér megið svara hverju sem þér viljið«, (Niðurl.). mælti hann, »það breytir engu í því, að eg er samt ávalt reiðubúinn til að þjóna yður — hönd mín og hjarta heyra yður til, jafnvel þótt þér hafið gefið 'öðrum hjarta yðar!« »Nei — það er enginn annar — eg er ekki neinum bundin«, stamaði hún í hálfum hljóðum, en svo- herti hún sig upp til að sýnast róleg og mælti svo: »Eg á við, það er ekki eins og þér ímyndið yður, lávarður minn, en samt sem áður hafa tilfinningar mínar

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.