Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 46

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1931, Blaðsíða 46
140 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Þetta áhygg'julausa og einfalda líf gat þó ekki staðið lengi. Fleiri og fleiri bætt- ust í regluna; ekki aðeins ungir menn, heldur líka konur, giftar og ógiftar og giftir menn. Fyrir ógiftu stúlkunum var auðvelt að sjá; þeim var vísað á eitthvert klaustrið og einn af bræðrunum látinn hafa umsjón með þeim. En við eldri gifta menn var lakara að eiga. Þeir komu og sögðu: »Við eigum konur sem við ekki getum skilið við. Segið okkur hvernig við eigum að lifa.« Fyrir slíkum mönnum varð að sjá, en hvernig? Alda sú sem Frans hafði vakið, var að vaxa honum yfir höfuð. Honum var ekki meir en svo um það gefið, að félagar hans hefðu eftirlit með nunnunum og var hræddur um að djöfullinn legði þar fyrir þá freistingar, sem yrðu þeim ofjarlar. Einmitt eitt aðalatriðið í stefnu hans, var að bindast ekki hjúskapar eða ástarbönd- um. Sumstaðar varð hann jafnvel að draga úr aðsókninni til hans, þegar heilir bæir, menn og konur, gift og ógift, vildi kasta öllu frá sér og fylgja honum. Hin mikla aðsókn og áhrif hans, báru honum því ýms áhyggjuefni að höndum. Hann gladdist að vísu yfir mikilli upp- skeru, en hann gat hvergi komið henni í hús. Net hans var að rifna undan hinni miklu mergð fiska. Á þessum áhyggju- tímum var hann farinn að litast um eftir hjálp, og hún var nær en hann grunaði. Bróðursonur Innocentiusar III., Hugolin kardináli, kom þá fram á sjónarsviðið. Hugo eða Hugolin, greifi af Anagni, var þegar hér var komið sögu, um sjö- tugt, virðulegur og ljúfur öldungur. Hann var maður innilega guðhræddur og prýði- lega menntaður; hafði stundað nám í Bologna og París. Aðaláhugamál hans voru sjálfstæði kirkjunnar og vakning og framfarir munkdómsins. Heima hjá sér, í Anagni, hafði hann stofnað fátækrahæli í sambandi við kirkju. f maímánuði 1206 var hann kjörinn biskup í Ostia og Vel- letri. Var það embætti að virðingu næst sjálfum páfastólnum. Mátti þá nærri geta, að ekki stæðu aðrir nær páfastóln- um en hann, þegar næst yrðu páfaskifti, enda varð það svo. Sem páfi, Gregor 9., varð hann munkreglunum hinn þarfasti og stofnaði ýms ný klaustur. Á herðar hans féll nú sá vandi að koma föstu skipulagi á reglu Frans frá Assisi. Fyrsta viðkynning þeirra Frans og Hugolins var sumarið 1216, þegar páfa- hirðin dvaldi í Perugia, en til náinnar vináttu dró þó ekki strax. Áriö eftir, hinn 14. maí, hélt Frans hinn venjulega hvítasunnufund í Portiun- cula. Fyrir þeim fundi var hann óvenju- lega kvíðandi. Á leiðinni trúði hann vini sínum fyrir áhyggjuefninu. Hann var orðinn hræddur um að hann væri að tapa tökum á bræðrunum og þeir mundu ekki framvegis vilja þýðast stjórn hans. Hann fann til þess sjálfur, að hann var ekki eins málsnjall eins og sumir þeirra og síst af öllu eins glæsilegur í framgöngu, eins og þeir margir hverjir. Þessvegna var hann hræddur um, að þeir mundu ekki framvegis vilja virða hann sem yfirboð- ara sinn, heldur losa sig við hann og kjósa annan. En allur þessi kvíði var ástæðulaus. Fundurinn hófst og Frans talaði eins og venjulega — og allir virtust ánægðir. Þá tók hann í sig kjark og skýrði bræðrun- um frá höfuðáformi sínu, að úr því bræð- urnir væru orðnir svo margir og starfs- kraftar góðir, hefði hann hugsað sér að láta þá fara út um allan heim og ávinna sálir fyrir Guðsríki. Hann skifti hinum þekta heimi niður í skattlönd, sem venju- lega var hið sama og ríki eða þjóðland. Landið helga var eitt af þeim og þangað sendi hann einn af þeim, sem hann hafði mest álit á. Sjálfur tók Frans Frakkland að sér, af því að þar væru sakramentin

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.