Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Blaðsíða 50
'Hugsum okkur, ef Búnaðarfélag íslands, væri stjórn-
að af sömu stjórnmálaflokkum algjörlega samkvæmt
línum flokkanna, en ekki eins og nú er, af bændun-
um sjálfum, hvílíkann glundroða það mundi skapa.
Eða ef önnur hliðstæð fyrirtæki yrðu fyrir slíku:
Guð forði bændum landsins frá því í lengstu lög.
Það ©r ábyggilega bezt að atvinnutækin, séu rekin
sem mest með hag þeirra fyrir augum, sem efnivið-
inn leggja til, þá verður að þeim mest gagn fyrir
þjóðarheildina.
Þeir, sem leggja til vinnuna og tækin, eiga að stjórna
þeim fyrirtækjum, sem þei-r starfa við, en ekki menn,
sem eru valdir á hverjum tíma, eftir dutlungum
stjórnmálanna.
Það var í upphafi tilgangurinn með stofnun þess-
ara fyrirtækja, að létta undir með sjómönnum og
útvegsmönnum, til þess að afla mikils og til þess
að koma hráefninu í meira verðmæti, til hagsbóta
fyrir land og þjóð. Þá var ákveðið, að verð hráefnis-
ins skyldi miðast við það að verksmiðjurnar hefðu
nægilegt fé á hverjum tíma til greiðslu á vöxtum og
afborgunum. Ættu því verksmiðjurnar, að vera eftir
vist árabil eign þeirra, er legðu til hráefnið. Hvernig
sú hlið málsins hefir orðið í framkvæmdinni, er met
ekki kunnugt.
En eitt er víst, að sjómenn og útgerðarmenn eiga
fullan rétt á að hafa á hendi stjórn fyrirtækjanna,
samkvæmt eðli málsins og það verður ábyggileSa
heppilegasta fyrirkomulagið.
Þýðing sjómannadagsins, er því eigi aðeins su>
að menn komi saman, til þess að kynnast og gleðjast
sameiginlega, heldur og sú, að minna þjóðina á starf
þeirra og tilverurétt sinn, til afskipta, af málefnum,
sjómanna á hverjum tíma. Svo og að minna sjómenn-
ina sjálfa á skyldur þeirra við þjóðfélagið og nauðsyn
samtakanna, svo að stéttin verði voldug og sterk 1
átökunum v.ið Ægi og í baráttunni fyrir réttlætiS'
málum sjómanna.
Baráttunni fyrir nýnefndu — og öðrum réttlætis-
málum, verður haldið áfram, þar til sigur vinnst, og
að því hlýtur að koma hið bráðasta, ef að sannast
skal í verki það sem haft er á í orði, að réttlæti og
lýðræði ríki í landinu.
Sjómannahój að Hótel Borg.
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ