Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Blaðsíða 24

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Blaðsíða 24
Nors\ fisJ{isl{ipahöfn, S\erjagarðurinn. eðlilega hinna mörgu vina okkar í hópi forráða- manna Slysavarnafélags Islands og annarra sjó- manna, og mér varð það sérstaklega ofarlega í hug, hve blessunrríkt starf sá ágæti félagsskapur hefir innt af hendi og vinnur í þágu þjóðarinnar allrar. Var mér það einnig harla lærdómsríkt að horfa á björgunaræfingar þeirra frændanna norsku, og fagnaðarefni, hve öryggi sjómanna og annarra sæfarenda er með þeim hætti tryggt betur en áður var. En hér var fleira, sem um annað fram dró að sér athygli okkar hjónanna. Við vorum hér á söguslóðum, því að þaðan sem við sátum á sævar- ströndinni sá inn í mynni Hafursfjarðar, en eins og alkunnugt er, var þar í fornöld háð hin fræga Hafursfjarðarorusta milli Haralds konungs hár- fagra og andstæðinga hans. Bar konungur sigur af hólmi í þeirri úrslitaorustu, og leiddi það til þess, að höfðingjar, er ekki vildu lúta yfirráð- um konungs, kusu fremur að flýja land og leit- uðu margir þeirra til íslands. Um þessa söguríku orustu fer dr. Sigurður Nordal eftirfarandi orð- um í hinni merku bók sinni íslenzk menning (1942); „Samkvæmt hinu forna íslenzka tímatali lauk baráttu Haralds til ríkis í Noregi með úrslitasigri hans í Hafursfjarðarorustu 872. En á síðari árum greinir menn mjög á um, hvort þetta ártal sé rétt, og þykir hitt sennilegra, að sú orusta hafi ekki orðið fyrr en milli 880 og 890 og hafi íslendingar einmitt miðað ársetningu hennar við upphaf landnámsaldar, sem þeir hafi kunnað betri skil a. Þetta vandamál er hér ekki unnt að ræða. En þess eins skal getið, að sterkar líkur mæla með því, að lítill útflutningur hafi átt sér stað til Is- lands fyrr en um og eftir 890. Hafi orustan i Hafursfirði verið háð 872, væri það ótrúlegra, að ofríki Haralds hafi verið bein aðalhvöt flestum landnámsmönnum að stökkva úr Noregji. Þa^ mundi varla hafa tekið þá 20—30 ár að átta sig á því harðræði, sem þeir urðu við að búa.“ Eitt er víst, að með orustunni sögufrægu i Hafursfirði voru örlög hinnar íslenzku þjóðar ráðin að eigi litlu leyti, og má því að sama skapi rekja þangað meginrætur landnáms íslands og stofnunar hins sjálfstæða íslenzka ríkis til forna. Má í því sambandi minna á orð Jóhanns skálds Sigurjónssonar: 8 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.