Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Side 38

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Side 38
Iþróttir Sjómannadagsins Hugsjón formannsins. Á fögrum vormorgni fyrir mörgum árum, þegar við karlarnir vorum ennþá menn með mönnum, skeði það, að loftskeytamaðurinn kom á stjórn- pallinn með aflafréttirnar að vanda. Skipstjórinn hafði lagzt til svefns, en stýrimaðurinn togaði á austurbrún Isafjarðardjúpsins, og fékk ekki bein. Fréttir frá flotanum gáfu til kynna, að víðar væri lítið að gera heldur en á Hafstein. Sjórinn var spegilsléttur. Reisuleg undiralda af suðvestri vaggaði gnoðinni þægilega. Morgun- sólin stafaði sjóinn gullnum geislum úr norð- austri. Múkkinn mókti sæll og glaður og færði sig aðeins um set til þess að verða ekki fyrir fram- stafninum, þegar skipið skreið áfram. Ritan sveimaði um syfjulega án sýnlegs takmarks. Há- setarnir sváfu úr sér þreytuna, eftir síðustu hrot- una, sem var nýafstaðin. Allir ofan sjávar máttu sofa eða móka, nema stýrimaðurinn og auðvitað trollvaktarmaðurinn, en hann blótaði á laun, í netjahrúgu fyrir aftan reykháfinn. Var það fegurð og kyrrð þessa vormorguns norður í íshafi, eða var hér aðeins löngum meðgöngutíma að ljúka, á venjulegan hátt, með fullmótuðu fóstri? Eða verkaði svefninn og drunginn á láði, legi og í lofti á hið frjóa og sískapandi ímyndunarafl loftskeytamannsins og gerði það langsýnt og vökult. Hann byrjaði að tala. Honum sagðist eitt- hvað á þessa leið: Á fögrum vormorgni eins og þessum, að lokinni vertíð, þegar flotinn er í höfn til viðgerða og þrifa, munu sjómennimir helga sér einn dag á vori hverju, og nefna hann Sjó- mannadag. Þennan dag munu þeir einkenna með skrúðgöngum, íþróttum, ræðuhöldum, dansi og drykkju að kvöldi í veglegustu húsakynnum höfuðstaðarins. Daginn munu þeir byrja með kappróðri á milli skipshafna. Þátttakan mun verða mikil, hver fleyta sem þá verður í höfn, mun eiga sína bátshöfn í róðrakeppninni. Þá verður keppt í sundi — stakkasundi og björgunarsundi. Sú keppni verður uppáhaldskeppni sjómanna og þátttakan mikil. Sjómennirnir munu sýna hin vandasömu og margslungnu störf sín, sem þeir inna af hendi í starfi sínu á skipunum. Keppt verður í bættningu netja, vírasamsetningum, lóðabeitingu o. s. frv- Þeir munu gefa út sérstakt blað á hverjum sjó- mannadegi. Skrifað af þeim, og prýtt myndum úr lífi þeirra og starfi. Sjómannadagurinn mun reisa sjómannastéttinni verðugan mynnisvarða við Reyk j avíkurhöf n. Þetta hugarfóstur formanns Fulltrúaráðs Sjo- mannadagsins, Henrys Hálfdanssonar, hygg ég að hafi fyrst komist af hljóði á hinum fagra vor- morgni við ísafjarðardjúp og undirritaður orðið fyrstur manna til þess að líta það hugarsjónum- Henry bar gæfu til að bera þessa hugsjón sína fram til sigurs. Þess vegna höldum við sjómanna- dag í dag og þess vegna eru þessar línur skráðar í Sjómannadagsblaðið. Framkvæmdin. Strax á fyrsta Sjómannadaginn skipuðu íþrott- irnar veglegan sess á dagskránni. Þátttakan 1 róðrunum var ágæt. Sjómennirnir mættu til keppni, oft illa undirbúnir. Dæmi voru til þess að skip, sem kom í höfn á meðan róðurinn stóð yfir, sendu róðrasveit í keppnina og náðu góðum ar- angri. Sundið var þreytt með nokkrum myndarskap fyrstu árin, en brátt dró úr þátttökunni. Hun hefur oft verið undarlega lítil á síðari árum- Starfsíþróttirnar hafa verið nokkuð á dagskrá, en þær hafa aldrei orðið veigamikill þáttur í hátíða- höldunum. Reipdráttur hefur verið mjög vinsseU, en illa hefur tekizt að fá þátttakendur. Til forna voru mælskulist og drykkja talin til íþrótta. Þær listgreinar hafa frá upphafi verið vel ræktar og notið mikilla vinsælda. Á sjómannadaginn ha 3 sjómennirnir kvatt sér hæfilegs og maklegs hljóðs- Úr ræðustóli hafa þeir borið fram margar gagn' legar og tímabærar umkvartanir, og tillögur, sem hafa þokað góðum málum áfram til sigurs- Drykkjan hefur oft verið sótt fast, og ekki allta drukkið við sleitur. Slíkt er karlmannlegt, og ber það ekki að lasta. þegar sneitt er hjá ofstopa og eftirmál verða engin. En það hefur verið ein 22 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.