Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Side 43

Sjómannadagsblaðið - 02.06.1957, Side 43
Fyrstu Sjómamiadagshátíðahöldin við Leifsstyttuna. Fánarnir jelldir, þegar minnst er dru\\naðra sjómanna. aðeins 3. Hallgrímur Jónsson, Grímur Þorkels- son og ég. Þar af höfum við Hallgrímur átt óslitið sæti frá byrjun en margir hafa unnið meira og rninna í Sjómannadagsráðinu. Af fyrstu 22 full- trúunum eru nú 9 dánir. Frá því að fyrsti full- trúaráðsfundurinn var settur, fyrir tuttugu árum, hafa 625 félagar okkar látizt við skyldustörf sín á sjónum. Við minnumst allra þessara föllnu fé- laga okkar með þakklæti og hrærðum huga með því að rísa úr sætum Starfsskýrslan. Við fundarsetninguna lýsti ég dálítið aðdrag- andanum að stofnun fyrsta Fulltrúaráðs Sjó- inannadagsins. Þetta fyrsta Fulltrúaráð sjómanna- dagsins var ríkt af áhuga og trú á málefnið, en það var bláfátækt í peningalegu tilliti, og hafði ekki eyri til að verja til starfsemi sinnar, þangað til það fyrir sérstaka náð fékk lánaðar kr. 100,00 — eitt hundrað krónur, hjá hverju því félagi, sem að samtökunum stóð og skyldu peningarnir endurgreiddir strax og sjómannasamtökin hefðu efni á því, og var það gert strax að afloknum fyrsta sjómannadeginum. Þessi félög,, sem lánin veittu standa enn þann dag í dag efnalega í stað, en ómaginn, sem þau tóku í fóstur, er orðið efnað fyrirtæki, sem við síðustu áramót átti eignir upp á 11.4 milljónir króna og margvíslega möguleika til að auka þau efni sjómannastéttinni, og þá sérstaklega gömlu sjómönnunum, til hagsbóta. Fyrsti fundur ráðsins áminnti stjórnina um að fara varlega í undirbúningnum undir daginn, því þótt að þessi lán hefðu fengist þá væri engin vissa fyrir því að dagurinn gæti borið sig fjárhagslega. En þrátt fyrir lítil fararefni og margskonar byrjunarörðugleika fór fyrsti sjómannadagurinn stórt af stað. Þá var strax lagður grundvöllur- inn undir starfsemi hans þannig, að enn þann dag í dag hefur verið lítið útaf því brugðið. í upphafi var strax rætt um að efna til sýningar er sýndi siglingasögu þjóðarinnar og þróun í sjávarútvegi. Skipuð var nefnd til undirbúnings þessu, en í henni áttu sæti: Þorsteinn Loftsson vélstjóri, Friðrik V. Ólafsson skólastjóri og Frið- rik Halldórsson loftskeytamaður. Nefndinni þótti ekki ráðlegt að koma sýningunni af stað fyrir fyrsta Sjómannadaginn, en næsta Sjómannadag sjómannadagsblaðið 27

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.