Sjómannadagsblaðið - 01.06.1981, Side 48
Frían hita frá kælivél?
Hver vill ekki fá frían hita?
Hafið þiö gjört ykkur grein fyrir að frystivélin er peningamylla,
sem malar dag og nótt þegar vel veiðist?
Orkan sem kaupa þarf til þess að frysta hvert tonn af fiski er ca.
32 kílóvött.
Varmaorkan sem frystivélin fjarlægir úr hverju tonni við fryst-
ingu og skilar frá sér til eimsvalans jafngildir allt að 130 kw.
Eitthundrað og þrjátíu kflóvöttum, sagt og skrifað! eóa 18 lítrum
af brennsluolíu.
Er ekki kominn tími til að handsama eitthvað af þessari
varmaorku?
Jú, hvort það er, margir hafa þegar gjört það, en margfalt fleiri
hafa ekki komið því í verk ennþá.
Hverjir geta fengið frían hita frá kælivélum og
lækkað hefðbundinn kyndingarkostnað?
MATVÖRUVERZLANIR geta lækkað hefðbundinn kyndikostn-
að um 85%.
VIÐ SKREIÐARÞURRKUN: Frystikerfi og vatnsútfellingar
kælikerfi eru notuð með mjög góðum árangri samanborið við fyrri
þurrkunaraðferðir.
VIÐ TIMBURÞURRKUN eru notuð vatnsútfellingarkerfi, með
hagkvæmum reksturskostnaði, samanborið við eldri þurrkunar-
aöferðir.
MJÓLKURFRAMLEIÐENDUR hafa nú þegar tileinkað sér
tæknina. Mjólkin kælist strax nióur í +2°C með loftkældum eim-
svala hitar kælivélin mjólkurhúsið. Þróuð hefur verið ný gerð af
vatnskældum eimsvölum, sem skila frá sér 60°C vatni á einangr-
aðan hitageymi. Hver lítri af mjólk gefur allt að ein'um lítra af 60°C
vatni með þessari aðferð.
Með fullkomnum loftmeðferðarkerfum (Airconditroning) hefur
tekist að auka mjólkurframleiðslu (í U.S.A. og víðar). Þessi kerfi
sjá um að hita- og rakastig sé á þægindasviðinu. (Comfort Zone).
Umframvarma frá kúm í fjósi má gjarnan virkja til orkusparnaðar.
FISKMÓTTÖKUR þarf að kæla meirihiuta ársins. Kælivélin
hitar umbúðargeymslur, vinnusali og vatn til þvotta á (kassa-
þvottavél og fleira) einangraðan geymi í ca. 60°C.
RÆKJU OG SKELFISKVINNSLU: Endurskil á eimsvalavarma
til upphitunar á fæöivatni til gufuketils. Til dæmis fyrir fiskkassa-
þvottavélina og til þess að skerpa á skreiðinni.
BJÓÐAGEYMSLUR: Varmi frá loftkældri vél hitar upp veiðar-
færageymslur og vatn til þvotta.
SALTFISKGEYMSLUR: Kælikerfið kemur í veg fyrir að varan
léttist og kemur í veg fyrir sveppagróður. Kælivélin skilar varma til
þurrkunarklefa til þess að lækka hitunarkostnaö.
Saltfiskkælikerfin hafa á mörgum stöðum skilað andvirði sínu
og meiru á fyrsta sumri, sparað fiskþvott og vigtartap, (í árvissum
verkföllum) hér á landi.
ÞURRKAÐUR SALTFISKUR þarf að geymast í þurrkæli-
geymslu til útskipunar við 60% rakastig eða lægra. Þá er kæli-
kerfið stillt á vatnsútfellingu til þess að halda rakastigi niðri.
Endurskil á varma frá kælivélum til lækkunar á orkureikningi.
Sveinn Jónsson
Frystivélauppsetning og eftirlit
Verkstæði Grensásvegi 48 — Sími 82730 & 82535
Skrifstofa Breiðagerði 7 — Sími 32632
Þeir sem búa á afskekktum stöðum fjarri jarðvarma eiga færri
kosta völ. Bæjarlækurinn er þá tiltækasti varmagjafinn, með
varmadælu, sem sér um upphitun á miðstöðvarkerfi hússins.
Varmadælan getur skilað 4 kflóvöttum í varma fyrir hvert kílóvatt
sem hún notar af rafmagni.
Eigum fyrirliggjandi loftkælda eimsvala til að nýta varmaflutn-
ing kælivélanna, til upphitunar í vinnusölum og með því móti að
lækka stórlega upphitunarkostnað. Höfum fyrirliggjandi varahluti
í 'margar tegundir kælivéla.
Byggjum upp sjálftæslu kælikerfi, sniðin eftir þörfum á af-
kastamöguleikum, íbjóðageymslurog fisklestar.
Byggjum blástur frystikerfi fyrir hverskonar afurðir.
Höfum fyrirliggjandi reimdrifnar skiptivélar fyrir R-1222 og 502
kælimiðla allt að 50.000 kg/cal við 10 + 25°C.
42 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ