Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Qupperneq 4
4
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
S
Avarp
Sjómannadagurínn hefur nú veríð hátíðlegur haldinn í 58 ár og jafnframt státar hátíðarrit hans,
Sjómannadagsblaðið, afsama virðulega aldri. Okkur verður óneitanlega hugsað til þeirrar kyn-
slóðar sjómanna sem flettu fyrstu eintökum þessa blaðs, seint á fjórða áratugnum. Voru hags-
munamálþeirra hin sömu eða lík þeim sem nú eru — hvað vœntu þeir að rœtt vœri íritinu sem út var
gefið þennan dag í virðingarskyni við störf þeirra og stétt? Vettvangur umfjöllunar um málefni
sjómanna var stórum þrengri í þá daga svo ekki sé minnst á málefni sjávarútvegsins almennt. En
víst er um það að fyrstu aðstandendur blaðsins og forvígismenn Sjómannasamtakanna brýndu
menn skörulega til sóknar fyrir bœttum kjörurn og eflingu þeirrar virðingar sem (slenskrí sjó-
mannastétt bar og oft skorti á að i heiðri vœri höfð.
Þannig vorufyrslu árgangar Sjómannadagsblaðsins litaðir aföðrum áherslum en núna, einkar-
lega afþvíhve vt'ðfeðm og sterk samtök sjómanna eru orðin nú og þar á meðal fjölmiðlun á þeirra
vegum. Af þvt leiðir að Sjómannadagsblaðið á tíunda áratug aldarinnar fetar á flestan hátt aðra
slóð en önnur málgögit sem nú eru út geftn um mál sjómanna og sjávarútvegs: Við látum öðrum
eftir að skilgreina þœr tœkninýjungar sem árlega koma fram og ekki verða tölum taldar, svo og
býðst stéttinni ríkulegur vettvangur annars staðar til þess að fjalla um kvóta, aflamagn, krókaleyfi
og annað sem stöðugt er í umrœðunni og helgum rúm Sjómannadagsblaðsins öðru efni.
Það er ekki fjarri lagi þótt sagt sé að Sjómannadagsblað okkar daga helgi sig fremur því
viðfangsefni að leita uppi elstu lesendur stna og inna þá eftir þeim kjörum sem einmitt þeir bjuggu
við og gerast nýjum kynslóðum íslenskra sjómanna ce meir framandi. Þessari stefnu hefur nú lengi
verið fylgt og er árangurinn sá að blaðið geymir verðmœtar og stundum ómetanlegar frásagnir
genginna kynslóða sjómanna. Er sú ekki sísta ástœða þess að í blaðinu nú segja tveir menn, sem
báðir verða níræðir á þessu ári, frá högum œsku sinnar á sjónum: Annar tók þátt í björgun
mannanna af „Jóni forseta" við Stafnes 1928 (stofnunarár SVFÍ) en hinn lýsir aðbúnaði í verbúð
hlaðinni úr fjörugrjóti og þéttri með marhálmi vestur við ísafjarðardjúp fyrir 1920. Það eru slíkar
frásagnir og minningar sem við viljum gœða lífi til frambúðar í ritstjórnarstefnu okkar. Hér er líka
greint frá háskaVeðrum og öðrum válegum atburðum sem ný skip og tækni hefur sem beturfer gert
fátíðari.
„En þótt kjörum sé breytt, þá er eðlið samt eitt... “ segir Örn Arnarson íkvœðisínu og erfiðið sem
sjómenn nútímans þurfa tíðum að leggja á sig er að sumra dómi oft ekki minna en almennt gerðist
forðum — mitt í allri tcekninni — og hagrœðingunni! Því skal enginn skilja ofanritað svo að ekki
þurfi enn harðfengi og karlmannslund til að stunda sjó við ísland eða að hœtturnar séu fœrri.
Sjómannadagsblaðið óskar öllum (slenskum sjómönnum gleðilegrar hátíðar og minnir á livert
fagnaðarefni það er að varla nokkru sinni áður hefur árlegur listi blaðsins um þá semfarist hafa við
störfsín á sjónum verið styttri en nú. Það ber ekki síst að þakka öflugu og vakandi starfi að bcettum
öryggismálum sjómanna.
Atli Magnússon
Fulltrúaráð Sjómannadagsins 1996
í Reykjavík og Hafnarfirði
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan: Sigurður Óskarsson Guðmundur Ibsen Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári: Þórhallur Hálfdánarson Ingvi Einarsson Matsveinafélag íslands: Þorbjörn Pétursson Sigurður Sigurðsson
Vélstjórafélag íslands: Jón Guðmundsson Sveinn Á Sigurðsson Daníel G. Guðmundsson Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir: Sigurjón Stefánsson Sigurður Hjálmarsson Félag Bryta: Rafn Sigurðsson Kári Halldórsson
Ásgeir Guðnason Sjómannafélag Rcvkjavíkur: Guðmundur Hallvarðsson Pétur Sigurðsson Erling R. Guðmundsson Skjöldur Þorgrímsson Jónas Garðarsson Birgir H. Björgvinsson Stýrimannafélag íslands: Hálfdán Henrýsson Guðlaugur Gíslason Skipstjórafélag íslands: Hörður Þórhallsson Stefán Guðmundsson Félag íslenskra loftskeytamanna: Ólafur K. Björnsson Reynir Björnsson Sjómannafélag Hafnarfjarðar: Óskar Vigftísson Ólafur Ólafsson Stjórn Sjómannadagsins 1996: Formaður: Guðmundur Hallvarðsson Varaformaður: Guðmundur Ibsen Ritari: Hálfdán Henrýsson Gjaldkerí: Þórhallur Hálfdánarson Varagjatdkeri: Daníel Guðmundsson Varamenn í stjórn: Hörður Þórhallsson Eysteinn Guðlaugsson Ólafur K. Björnsson
Sjómannadagsblaðið
kemur út á Sjómannadaginn ár hvert
og er sent í pósti til áskrifenda.
Áskrift í síma 553 8465
Verð kr. 600.00-
ÚTGEFANDI:
Sjómannadagsráð
Hrafnistu DAS Laugarási,
104 Reykjavík
RITSTJÓRAR:
Atli Magnússon
Garðar Þorsteinsson ábm.
RITNEFND:
Ólafttr K. Björnsson
Hálfdán Henrýsson
Sigurður Þ. Árnason
PRENTVINNSLA:
G. Ben. Edda prentstofa hf.
LJÓSMYND Á KÁPU:
Sigurður Þ. Árnason: „ Varðskipið
Albert á Áttœringsvogi við Papey 1966“
AUGLÝSINGAR:
Jón Kr. Gunnarsson