Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 55

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1996, Page 55
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 55 Á tröppunum við dyr hússins að Nýlendugötu 20, en þar hefur Guðmundur búið alla œvisína. (Ljósm. Sjómannadagsbl./AM) maula þær. Oft fórum við með Frökkunum út á Grandann, en þar tíndu þeir skelfisk. Þeir höfðu með sér körfu og þegar karfan var orðin full var hún borin um borð í skipið í slippnum. Þar var skorið innan úr skelinni, fiskurinn settur í pott og soðinn ásamt beinakexi í lúkarnum. Að endingu var potturinn borinn upp á þilfar og hverjum manni fengin skeið. Þar með var sest að snæðingi og ég man að þessi kássa bragðaðist ágætlega, því oft fengum við strák- arnir að taka þátt í veislunni.“ Föðurmissir „Svona liðu nú bernskuárin, en veturinn 1914, þegar ég var á tíunda árinu, dó faðir minn aðeins 52 ára gamall. Hann hafði verið á vetrar- vertíð og fengið lungnabólgu um borð. Hann komst lifandi til lands, var fluttur upp á Landakotsspítala, og lést þar. Þá var mikil sorg að okk- ur kveðin og vandkvæði, en við vor- um fjögur börnin og ég elstur. Skút- an sem faðir okkar var á hét Sigríður og var í eigu Th. Thorsteinsson út- gerðarmanns. Hann átti tvær skútur og rak auk þess tvær verslanir í Reykjavík, matvöruverslun og fata- verslun sem Haraldur Árnason, síð- ar stórkaupmaður stóð fyrir. Þessi fataverslun brann 1915 í Austur- strætisbrunanum. Th. Thorsteinsson reyndist okkur afar vel í þessum þrengingum og til marks um það er að alltaf sá hann til þess að heimilið skorti ekki mat. Það var líka honum að þakka að ég fékk að fara með kútter Sigríði í miðsumartúrinn árið 1914. Skúturnar voru gerðar út frá því í mars og fram í september, en þá var þeim lagt inni á Sundum. Þegar þær voru sóttar inn á Sund í mars var sagt að þær væru leystar úr „múrning- um.“ Miðsumartúrinn varði frá Jóns- messu og fram í ágústlok — þetta sex vikur — og þá voru veður best og hægt að lofa svo ungum pilti með. Á vetrum var einkum verið á Selvogs- bankanum en þegar fram á sumar kom fyrir Vestíjörðum.“ Mannlíf um borð í kútter Sigríði „Þetta var mikil upphefð fyrir tíu ára snáða — að komast af götunum og í þetta karlmannlega starf sem skútusjómennskan þótti vera. Við vorum mest fyrir vestan og allt varð þetta manni ákaflega eftirminnilegt. Á kútterunum voru 26-30 menn og þar sem fjöldinn var slíkur en skipið ekki nema um 80 lestir urðu menn að ganga vaktir og deila kojunum tveir og tveir. Vaktirvoru fjórar: Dagvakt var frá tólf til sex, kvöldvakt frá sex til miðnættis og svo hundavaktin frá miðnætti til klukkan fjögur. Þá tók við morgunvaktin til hádegis. Skipstjórinn var Björn Jónsson frá Ánanaustum, ágætur maður. Sama get ég sagt um aðra skipverja og þá ekki síst manninn sem ég deildi koj- unni með, en hann hét Magnús. Ekki get ég rnunað hvers son hann var, en hann átti að líta til með ntér og gerði það með miklum sóma. Kátt var alltaf á Hjalla um borð og einkum var mikið sungið. Hásetarnir voru flestir frá Eyrarbakka og Stokkseyri og nokkrir ofan af Akra- nesi en fáir úr Reykjavík. 1 hópnum voru margir góðir raddmenn og end- urómaði skútan stundum af söngn- um. Þótt vaktir væru eins og ég hef lýst þá komu samt allir upp meðan mikill fiskur var og stóðu meðan það varði. í tregfiski sváfu menn og stundum líka á sinni vakt. En þótt stundum aflaðist vel fór það nú svo að hrúgan mín varð heldur lítil. En Th. Thor- steinsson hafði ákveðið að ég skyldi eiga allan þann fisk sem ég veiddi og víst varð það móður minni og fjöl- skyldunni nokkur búhnykkur.“ Ensk herskip fyrir Vestfjörðum „Gaman var að fylgjast með því hvernig seglabúnaðinum var stjórn- að, en þegar hvessti og fækka varð seglum varð að senda menn upp í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.